Skírnir - 01.08.1908, Side 30
222
Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta.
greiningi hafa valdið, af þeim kennend-
um, er þá lifðu, og með hvaða röksemdum, lær-
dómum, er koma í bág við heilaga ritningu, hefir verið
hafnað og áfellisdómur uppvfírþeirn kveðinn.« Hérerþví
beinlínis neitað, að þau eigi að hafa dómaravaldið, og má
því nærri geta, hvort upphaflega hafi til þess verið
ætlast i lútersku kirkjunni, að trúarjátningarnar ættu að
vera dómari (og um leið drotnari) yfir skoðunum manna
á ókomnum öldum. Hitt er bersýnilegt, að þeim var ætl-
að að vera til leiðbeiningar.
A 17. öldinni náði rikiskirkjan fastari tökumámönn-
um innan lútersku kirkjunnar en nokkuru sinni áður, og
þá komst hin öfgakenda »rétt-trúnaðarstefna« til valda og
um það tímabil hefir sagt verið, að það hafi di/rkað
játningarritin. Þá var því haldið fram af guðfræðingun-
um, að þau væru í öllum atriðum samróma ritningunni,
og fyrir því ættu þau að segja fyrir um það, hvernig
skýra ætti ritninguna. Sumir liéldu því fram, að þau væru
guðinnblásin, þótt ef til vill væri það eigi í sama mæli
og sjálf ritningin. Að einmitt ríkiskirkjan lenti í þessum
öfgum er að sumu leyti skiljanlegt, því að henni hætti
við að gera játningarritin að löghók, og eftir þeirri
lögbók vildi hún einnig skipa fyrir um kenninguna. Þessi
rétt-trúnaðarstefna 17. aldarinnar afneitaði í raun ogveru
meginreglu siðbótarinnar. Afleiðingin varð líka sú, að
kristindómslífinu hnignaði stórlega og sýnileg visnun færð-
ist yfir lútersku kirkjuna.
Nú er fastheldni 17. aldarinnar við játningarritin höfð
að varnaðarvíti í trúfræðiskenslunni við háskóla mótmæl-
enda i Norðurálfunni. Svo er það við háskólann í Kaup-
mannahöfn, og munu allir við það kannast, þeir er þar
hafa stundað guðfræðisnám síðari árin. Og er þó trú-
fræðiskennarinn þar, sá sem nú er, prófessor P. Madsen,
gætinn maður mjög og af fiestum talinn íhaldsamur.
Hin svonefnda rétttrúnaðarstefna (orthodoxismus) mun
nú aldauða í Norðurálfunni, en á enn griðland sumstaðar
í Norður-Amei’iku, þótt undarlegt megi virðast, þar sem