Skírnir - 01.08.1908, Page 34
226
Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta.
að lenda í þeim flokki manna. En hvort sem þetta er
hinn rétti skilningur á orðum Melanchtons eða ekki, þá
er hitt víst, að lúterska kirkjan hefir hafnað slíkri kenn-
ingu; jafnvel rétttrúnaðarguðfræðingar 17. aldarinnar
höfnuðu henni. Og hafi þetta verið skoðun Melanchtons
og Lúters, þá er Agsborgarjátningin var samin, hafa 17.
aldar trúfræðingarnir að þessu leyti verið vaxnir upp úr
Ágsborgarjátningunni. Melanchton var sjálfur að nokk-
uru leyti vaxinn upp úr henni 1540. Fyrir því breyttí
hann henni. Á því sést bezt, að hann áleit hana ekki ó-
skeikula og alfullkomna. Eftir fáein ár hafa skoðanir
hans breyzt svo, að hann breytir henni í nokkurum atr-
iðum. Án þeirra breytinga hefir honum ekki lengur fundist
hún rétt játning sinnar trúar. Hvað mundi honum þá hafa
fundist, ef haun hefði getað lifað fram á þennan dag og-
andi hans haldið áfram að þroskast um öll þau mörguár
hér í tímanum?
En ef vér að sjálfsögðu verðum að neita því, að láta
Ágsborgarjátninguna binda skilning vorn á ritningunnir
svo meistaralega sem hún þó er samin, þegar þess er
gætt, hvernig þá horfði við, hversu miklu síður geta þá
gömlu trúarjátningarnar gert það? Sá iiugsunarbáttur og.
rökfærsla og þekking, sem þær eru reistar á, liggur oss-
enn þá miklu fjær. Af þessu verður það bersýnilegt, að
það er að eins andi játningar-ritanna og aðalstefna, sem
getur verið oss til leiðbeiningar, annað ekki.
Fróðlegt er að líta á, hvert gildi játningarritin eru;
látin hafa í framkvæmdinni, t. d. hjá Dönum, þeirri ná-
grannaþjóð vorri, sem vér höfum fiesta hluti tekið eftir
alt til þessa. Þar er svo ákveðið með lögum, eins og hjá
oss, að prestarnir eigi í kenning sinni að fara eftir játn-
ingarritum þjóðkirkjunnár. En sú venja hefir komist á,.
að beita þeim lögum örsjaldan eða sama sem alls eigi.
Fyrir nokkurum árum kom það fyrir, að prestur einn.
innan dönsku þjóðkirkjunnar neitaði kenningunni um ei-
lífar kvalir útskúfaðra, og lagði eigi þá afneitun sína í
lágina, heldur barðist fremur fruntalega fyrir skoðun sinnL