Skírnir - 01.08.1908, Qupperneq 38
230
Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta.
lýsing á oss né bræðrum vorum, þeim »ekki fáum máls-
metandi kirkjumönnum annarra þjóða, einkum innan rík-
iskirknanna í Norðurálfulöndunum«, sem halda fram sömu
kröfunni um kenningarfrelsi presta og vér.
Vér ætlumst til að ritningin verði uppspretta og grund-
völlur kenningarinnar, eins og hún heflr verið hingað tii.
Oftast mun það áður hafa verið orðað svo: að hún ætti
að vera regla og mælisnúra kenningunni. Það orðtak er
eigi sem heppilegast, með því að slíkt ritsafn sem heilög
ritning er, getur ekki veríð regla og mælisnúra. Þetta
ritsafn heflr í ýmsum atriðum ólíkar skoðanir og trúar-
hugsanirnar og trúarhugtökin koma þar fram í breytileg-
um myndum. Ritningin sýnir oss sjálf átakanlega, hvern-
ig trúarhugmyndirnar breytast og þroskast. Af því eru
ritin ekki öll samróma. Og fyrir því getum vér ekki
vænst þess, að biblían öll sé sjálfri sér samkvæm, sé ein
óskeikul heild. En þótt hún sé það eigi, þá skýrir hún
oss frá opinberun guðs. Hún er opinberunarsaga. Og
einmitt af því að hún er það, er hún að sjálfsögðu grund-
völlur kenningarinnar, með því að það er þessi guðlega
opinberun, sem prestarnir eiga að kenna og vilja kenna.
Og hún er meira. Hún verður jafnan uppsretta kenuing-
arinnar. Ur þeirri lind eys v resturinn meginefni kenn-
ingarinnar. Við þann brunninn dvelur hann. Þaðan
sækir hann næring og styrk trúarlífl sínu. At' trúar-
reynslu hinna helgu rithöfunda lærir hann, og við lestur-
inn finnur hann samhug með þeim, flnnur sama trúar-
strenginn óma í sínu hjarta, finnur þar sömu þrána, sömu
löngunina eftir samfélagi við höfund lífsins, heyrir þar
sama hróp sálarinnar eftir hinum lifandi guði. I þeim
brunni finnur har.n lifandi vatn; í hinum helgu bókum
finnur hann orð eilífs lífs.
Og ef eg man rétt, er einmitt kornist svo að orði í
lögum kirkjufélagsins vestra, að ritningin sé hin sanna
uppspretta fyrir kenninguna og trúna. Og eg tel það
ákvæði ágætt. En öðru ákvæði er þar bætt við, að hún
sé jafnframt »hið fullkomna lögmál fyrir kenning, trú og