Skírnir - 01.08.1908, Blaðsíða 39
TrúarjátBÍngarnar og kenningarfrelsi presta. 231
• '•! .. '> .4: V .
hegðan safnaðarins«. Það ákvæði er ekki heppilegt, því
að heilög ritning er engin lögbók. Og af þvi að hún er
ritsafn eftir ýmsa rithöfunda frá ýmsum tímum, liggur
það i hlutarins eðli, að hún getur sízt af öllu verið full-
komíð lögmál fyrir kenninguna. Og ekki er til neins að
.ætia að ráða fram úr vandræðunum með því að segja, að
hún sé öll »i heild sinni guðinnblásin bók og þar höfum
vér guðs orð fyrir oss liggjandi«. Sliku er hægt að slá
íram og heimta, að allir samþykki það. En erfiðara
verður að sanna slíkt. Og ekki heimtar ritningin sjálf
slíka trú. Hún mótmælir þvert á móti slíkri trú gersam-
lega. Eg er sannfærður um, að enginn maður með heil-
brigðri skynsemi, sem kynt heíir sér alla ritninguna ræki-
lega og hlotið hefir sæmilega fræðslu urn uppruna hinna
helgu bóka, fæst til að trúa öðru eins. Eg er samfærður
um, að það er bæði rangt og frámunalega óviturlegt að
halda fram þeirri innblásturskenningu, »að guðs andi hafi
innblásið mál það, er hinir mannlegu höfundar ritningar-
innar tala á; hann standi æfinlega á bak við þann vitnis-
burð, er þeir bera fram, hann stýri öllu máli þeirra, ráði
■öllum þeirra orðatiltækjum«. Slíkri innblásturskenning
hefir síra J. B. haldið fram (sjá 5. árg. Sameiningarinnar,
bls. 177) og slíkri innblásturskenning virðist hann enn
halda fram. Enn ógætilegar hefir síra Björn B. Jónsson
talað. I einum fyrirlestri sinum, sem prentaður er í 9.
árg. Aldamóta og nefnist Guðlegur innblást-
u r h e i 1 a g r a r ritnihgar, kemst hann svo að orði,
þar sem hann lýsir þeirri skoðun á innblæstrinum, sem
hann telur hina einu réttu: »Og þetta er vor kenning,
að guð hafi með sínum heilaga anda útbúið höfuada bibli-
unnar, að alt, sem þeir hafa ritað, sé aígerlega satt og sé
samþykt af guði, svo alt, seni stendur í biblíunni, sé þar
að hans vilja, eins og hann sjálfur vildi segja það og sé
því hans orð, talað upp á hans ábyrgð. Vér neitum því,
að missagnir eða Víllur séu í 'biblíúnni, heldur sé hún öll*)
innblásin af guði«.
*) Leturbreytingarnar gerðar af síra Birni B. Júnssyni sjálfunl•