Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1908, Síða 83

Skírnir - 01.08.1908, Síða 83
Stikukerfið. 275 villandi, með því að þau hafi einhverntíma (fyr eða síðar) táknað eitthvað annað en þær stærðir, sem þær eiga nú að tákna. En þessi ástæða er þvi að eins gild, að orðin sé höfð um ákveðnar stærðir i nútíðarmáli, annars skiftir það mjög litlu, hvort nokkru eða engu munar í þessu efni frá því, sem fyrrum var, því að fæst- um er kunnugt um merkingu þeirra táknana á máls- og vogar-eindum, sem eru fyrir löngu úr gildi gengnar. Þannig finst mér hreinasta hótfyndni að segja, að stika sé villandi táknun á »meter« (sem á að tákna ákveðinn hluta úr ummáli jarðar, er hefir þó ekki reiknast alveg rétt), af því að þar muni einhverju örlitlu frá hinu forna stikumáli, sem er hætt að hafa í viðskiftum fyrir langa- löngu1), eða að það taki engu tali að kalla »kilometer« röst, af' þ \ í að röstin hafi í fornöld verið lengri (hvað miklu veit enginn, enda er ekki ólíklegt, að orðið hafi táknað misjafna vegarlend á ýmsum tímum og stöðum2 * *). Það á heima um bæði þessi orð (stika og röst), að þau eru falleg og smellin og vel fer á þeim i málinu, og ættum vér ekki að sleppa þeim, til að koma útlendum orðum að. Stika er fornt heiti á kvarðanum (mælistöng- inni), sem mælt (eða stikað) er með, öldungis eins og út- lenda orðið »meter« (jrsxpov á grísku8) og getur kvarðinn verið lengri eða styttri, eftir því sem frumeind lengdar- máls er í hverju landi. Það má eins vel miða lengd hans (og stikunnar) við frakkneska »metrið« eins og hvað annað. Þá er skifta skal stikunni að tugamáli, horfir beinast við 1) Hafi islenzka alinin í fyrstu verið 185 * */7 þumlungnr, eins og Bogi Th. Melsteð ætlar, þá hefir ekki vantað mikið á, að stikan forna, sem átti að vera 2 álnir islenzkar, væri eins löng og hin nýja (o: frakkneska ,,metrið“). Annars hefir álnarmálið verið ærið misjafnt. 2) Rússneska röstin (,,verst“) er ekki miklu lengri en „kilometer“, og hendir það helzt til þess, að hin forna röst hafi ekki ætíð eða alstaðar á Norðurlöndum farið langt fram úr þeirri vegarlengd, því að líklega er rússneska orðið þaðan komið (úr fornsænsku ?). Sbr. mismuninn á mílu í ýmsnm löndum. s) Orð þetta táknar mælistiku (upphaflega) og mál eða mæli yfirleitt. 18*
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.