Skírnir - 01.08.1908, Page 94
286
Erlend tíðindi.
konungi, með 16,000 kr. launum, en hrapaði af stóli þar, er upp-
vís urðu fjársvik Albertis, með því að hanu hafði verið varaformað-
ur í stjórn Bœndasparisjóðsins sjálenzka og þeir Alberti unnið þar
saman margt ár.
Meðal þeirra 3, er í ráðuneyti komust þá er þeir Alberti
sleptu völdum, — einn kom í stað Yilh. Lassen, er dó í vor —
er helztan að nefna N. Neergaard, er verið hefir um hríð fremstur
maður í liði miðluuarmanna á þingi Dana. — —
Onnur tíðindi helzt í Danmörku þetta skeið er heimkoma norður-
fararleiðangursins frá vorinu 1906 á skipinu D a n m a r k að kanna
og mæla austurströnd Grænlands norðan til, alt frá 77. stigi og
norður fyrir landsenda. Þar réð fyrir Mylius-Erichsen rithöfundur
og Grændlandsfari áður; og urðu það ömurleg forlög hans, að hann
varð úti í Grænlandsóbygðum snemma vetrar sem leið, og félagar
hans tveir með hönum, annar grænlenzkur. Mylius-Erichsen var
rúmlega hálffertugur, er hann lózt, og var að honum mikill mann-
skaði. En vel hafði ferðin tekist að öðru leyti, land alt mælt með
sjó um 6—7 mælistig, alla leið norður fyrir landsenda, og gerður
af uppdráttur. Þar reyndist mikið öðru vísi lagað land en áður var
vitað. Og þykir Iandkönnun sú og þar með fylgjandi nátttúru-
vísindalegar rannsóknir allmikið afrek og merkilegt.
Alment prentaraverkfall í Danmörku dagana 10.—18. ágúst
olli þvj, að þar kom varla út nokkurt dagblað þá daga, og þóttu
það mikil viðbrigði.
Ein höfuðtíðindi á sumrinu þessu eru þau, að Tyrkjasoldán
Abdul Hamid II., lagði niður einveldi sitt og veitti þegnum sínum
stjórnfrelsi. Hann hafði gert atrennu til þess áður, á sínum
fyrstu stjórnarárum, fyrir 32 árum. Þá var í aðsigi ófriður við-
Rússa, og vildi hann bæði ávinna sór hylli og fúslegt fylgi hinnar
yngri frjálshugaðrar kynslóðar í ríki sínu, og afla ríkinu trausts
og gengis meðal menningarþjóðanna, höfuðþjóða álfunnar, í viður-
eigninni við Rússa. En er Tyrkir fóru nær eintómar hrakfarir fyrir
Rússum, kom afturkippur í frelsistilþrif soldáns, og vildi’hann ekk-
ert við Ungtyrki eiga eftir það, þjóðmálaflokk þann, er stjórnar-
bótinni kom á gang. Þeir voru síðan lengi hafðir út undan og
látnir jafnvel sæta ofsóknum. En síðari árin hafa þeir haft sig
upp aftur, er soldán tók að eldast og margt tekið til að ganga á
tréfótum. Og í sumar varð það uppvlst, að þeir höfðu fengið her-