Fréttir frá fulltrúaþingi(nu) í Hróarskeldu viðvíkjandi málefnum Íslendinga - 01.01.1840, Side 10
10
að kaupmenn þeir, sem liafi haft verzlun á Islandi á sein-
ustu 20—30 árunum, hafi allir fariS á liöfuöið allstaðar á
landinu. Ilaun sætti líka [>essu færi til að tala um bæn-
arskrár [iær sem áður var getið, og let prenta vitnis-
burðarbréf frá Narfa Olafssyni og Haldóri Haldórssyni í
Borgarfjarðarsýslu, þess efnis , að þeir hafi hvorki sjálfir
skrifað nöfn sín, ne beðið aðra þess, undir bænarskrána
úr Borgarfjarðarsýslu, og segir Knúdtzon það berlega,
að þeir sem hafi gengizt fyrir að safna undirskriftum bæði
þar og í Arness- og Rángarvalla-sýslum, (því þar sé
mörg nöfn undir skránum með sömu hendi), muni hafa
falsað undirskriftirnar í lastverðum tilgángi. I Kaupm.
hafnar-pósti No. 15(5, 157 og 167 er Knúdtzyni svarað að
nokkru: þar er fyrst sagt stuttlega frá, hversu stjórn
Dana hafi kúgað Isiendiuga með verzlunarófrelsinu um
lángan aldur, og ekki borið nærri nóga umhyggju fyrir
að styðja þá þegar okinu var létt að nokkru. En þarað-
auki er sýnt, að það sé rángnefni að kalla verzlun Islend-
ínga frjálsa, meðau hún er í þvílíku horfi sem nú er,
því gjald það sem lagt er á aðrar þjóðir, og tímaspillir
sem leiðir af að verða að sækja leyfi til .JR.entukammers-
ins,” sé hvorttveggja eins skaðlegt einsog fullt banu væri
lagt á öll kaup við útlenda, og þó verzlunarástand Islend-
ínga sé í nokkru betra horfi enn áður, og sýni ávexti
að vonum, einkura í framförum sjáfarútvegarins, þá sé
þó lángt frá að lag sé komið á þetta efni enn sem komið
er, og sé ófrelsið einkum skaðvænt vegna þess, að Danir
eru lítil þjóð, sem lítið á undir sér, og stendur á baki
annarra í mörgu, en hefir ekki nærri eins mikið kaupskapar-
afl eins og hinar voldugari þjóðir; Danir geta því ekki
borgað Islendíngum eiiw vel vöru þeirra og aðrar þjóðir
mundi geta, af því þeir geta ekki sjálfir haft eins mik-
inn arð af henni, eða selt hana eins sér í hag; og vöru
þá sem þeir selja á Islandi geta þeir heldur ekki selt
eins vel, af því þeir kaupa hana að , og verða að taka