Gangleri - 01.08.1870, Side 21

Gangleri - 01.08.1870, Side 21
21 1867, sem vera mun í raargra höndum hjer á landi. IJá J»ykir það og sannreynt, bæði hjer og í öðrum lönd- um, að hcpta megi ötbreiðslu margra næmra sjökdóma, með því að varna samgöngum milli sjókra og heilbrigðra, og óvíða ætti það í raun og veru að vera hægra, en víða hjer á landi, þar sem sveitir eru strjálbygðar, en stórár og öræli víða deila hjeruðum. Pað er því ekki ætlan vor, að leiða hjer rök að nytsemi heilbrigðisnefndanna, heldur að benda á hitt, er einkum hefir verið því til fyrirstöðu hingað til, að þær næðu tilgangi sínum svo sem fyllst má verða, og ætlum vjer, að þar til megi sjer í lagi telja það, að nefndir þessar hingað til heíir vantað lög til að fara eptir. Amtmaður Havstein er, eins og kunnugt er, frum- kvöðull nefuda þessara, og hefir hann góðfúslega Ijeð oss ýms brjef, er snerta stofnun þeirra og aðgjörðir liingað til, og viljum vjer, eptir þvf sem tækifæri b/ðst í grein þessari, geta um helzta innihald nokkurra þeirra: Með brjefi dagsettu 27. nóvember 186 6 skoraði amtmaður Ilavstein á alla prófasta í amtinu, að gangast fyrir að stofna heilbrigðisnefnd í hverri kirkjusókn fyrir sig, og brugðust þeir allir — að tveimur undanteknum, er eigi kváðust vilja sjálfir sitja í nefndum þessum eð- ur gangast fyrir stofnun þeirra, þótt þeir álitu málefnið í sjállu sjer gott, — vel við, og hjetu atlylgi sfnu, en álitu jafnframt óumflýjanlega nauðsynlegt, að nefndunum yrði sem fyrst fengið erindisbrjef þeim til leiðbeiningar, sem og, að þeim yrði veitt traust og festa með Iögum. 27. desember s. á. ritaði biskup landsins Dr. P. Pjet- ursson, öllum próföstum í Norður og Austuramtinu, og studdi kröptuglega að stofnun heilbrigðisnefndanna (sjá

x

Gangleri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.