Gangleri - 01.08.1870, Síða 25

Gangleri - 01.08.1870, Síða 25
25 heita allgóður, en á seinni partinum urðu ileiri og þyngri hörðu árin: 1701 var vetur harður, og vorið kalt. Ilafís kom um fardaga og lá Iangt fram á sumar. Grasbrestur var mikill og nýting slæm á heyjum, og sláttur eigi lengri en 6 vikur. Fiskileysi var þá fyrir öllu landi. Margar harðindasveitir og útkjálkar eyddust þá, og það einna helzt í Þingeyjarsýslu, en þjófuaður og rán gekk fram úr öllu hófi. Ilettu- sótt gekk þá líka, helzt við sjávarsíðuna, á fólki því er að mestu leyti lifði á þurrum fiski og vatni. 1702 var ekki veðrátta hörð, en bjargarskortur hjelzt við, og mannfallið vcgna undanfarandi harðinda. 1703 kom hafís um vorið, og sumarið var kalt og vætu- samt. 1705 var vetur hretviðrasamur og harður, vorið hart og lítill gróður kominn um Jónsmessu; snjóaði þá opt um hásumarið. Ilafís lá við Norður- og Vest- urland langt fram á sumar. 1706 gengu miklir landskjálftar, helzt í apríhnánuði; í Ölvesi lögðust þá í auðn 24 lögbýli og margar hjáleigur. 1707 gekk mikil bólusótt; hún barst hingað á land með þeirn atvikum, að klæðnaður af íslenzkum manni, er dáið hafði úr bólusótt erlendis, var íluttur hingað og brúkaður hjer ;t sóttin dreifðist brátt út og gjörðist svo mannskæð, að um 18,000, eða fullur þriðjungur allra landsmanna er sagt að hali úr henni dáið, og að það haíi verið hið mann- vænsta fólk á bezta aldri. Bólusótt þessi hefir

x

Gangleri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.