Gangleri - 01.08.1870, Qupperneq 29

Gangleri - 01.08.1870, Qupperneq 29
29 var umferð mikil af flökkumönnum, og stuldur og rán hið mesta. Yetur hinn næsti lagðist að um Mikaelsmcssu með snjóum og frosti; eldur var J>á uppi í Kötlagjá. 1756 hjeldu vetrarharðindin áfram frá nýári, helzt fyr- ir norðan og austan ; rak þá hafís að Norður- landi á einmánuði og hlánaði aldrei til Kross- messu; varð nö enn hinn mesti kvikfjárfcllir, en manníeilir mestur vestra. í’jófnaður og rán var þá all títt, og hrossakjöt etið um allt land. Pað sumar láu hafísar við land fram yfir hundadaga og máttu sakir þeirra Hofsós- og Ilöfða skip snóa til baka. Á Norðurlandi voru stundum hörkur og snjór í jólí og ágúst mánuðum og álnar djópur snjór fjell á Sljettu seint í jólímánuði, og eigi varð sláttur byrjaður fyrr en í áliðnum ágóst. 1757, vetur sá hinn 7. og seinasti í þessum harðindum, var í meðallagi, en ógæítasamt og fiskafli lítill; voru menn þá svo dregnir og aðfram komnir af undangengnum harðindum, að manndauða gjörði nó mikinn um allt land af sulti og megurð ; það ár er sagt að á íslandi hafi dáið 4200, en á þessum 7 hallærisárum hafi fólkið fækkað um 6200 í landinu. 1761 var vetur harður og stórveðrasamur, vorið kalt og gróðurlítið; þá tók fjársýkin að dreifast ót af hin- um spönsku hrótum er fluttir voru hingað sumar- ið fyrir. 1764 var vctur harður og hríðasamur allt frá október- mánuði árið fyrir ; þá gekk fjársýkin syðra, en bólusótt vcstra.

x

Gangleri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.