Gefn - 01.01.1872, Page 22

Gefn - 01.01.1872, Page 22
24 upp, eru alltaf að segja þeira að þeir sé miklir og menntaðir menn og allt eins góðir og »hinir«, svo |þeir halda þetta loksins um sjálfa sig og koma allstaðar fram með óskamm- feilni og þussaskap: það er árángurinn af þeirra »menntun«. Hroki og sjálfbyrgíngsskapur er því aðaleðli þessara mann- flokka, sem menntan heimslífsins hefir af sér getið, og þeir finnast hvergi nema í borgum og bæjum, þó sjálfsagt hljóti að kvikna keimur af þeim einnig út um landsbygðina, þar sem fólkið annars er einfaldara, af því það lifir í einfaldari hlutfðllum og á við betri kjör að búa. Sjálfsagt er nokkuð réttvíst í þessu, nokkur hæfa fyrir þessu skrílslega lífi, því allir hlutir eiga sér sína orsök. Hlutfallið á milli enna heldri manna og hinna óæðri stétta er í rauninni mjög óheppilegt í stórborgum. Á Islandi upp til sveita, og í útlöndum á landsbvgðinni er þó einhverr jöfnuður á milli húsbænda og hjúa; hjúin eru ekki álitin svo sem ánauðugir þrælar, heldur sem menn, og þannig var það og í fornöld, því þó þá væri þrældómur, þá var hann að sumu leyti varla nema að nafninu til hér á norðurlöndum, og það þó húsbændur mætti selja þrælana og fara með þá eins og fé. Allt öðruvísi var þetta hjá Grikkjum og Róm- verjum: þar voru þrælarnir verri og aumari en dýr, barðir og stúngnir, bundnir eins og hundar til þess þeir væri við verk sitt, eða þá þeir voru festir við dyrastafinn til þess að benda eða láta vita af þegar einhverr kæmi — og margt annað mætti tefja upp af slíkri meðferð, sem var öldúngis óþekt á norðurlöndum; og þó að menn kannske ekki geti fylgt gángi mannlífsins fet fyrir fet, þá sýnist mega gánga að því vísu, að sá andi, eða það viðmót og sú aðferð sem heldra borgarfólk hefir við hjú og undirmenn, eigi kyn sitt að rekja suður eptir, en ekki til sjálfra norðurlanda. En þetta verður allt með svo miklum tilbreytíngum og vafn- íngum, að það yrði of lángt að fara fram á það hér. Vér skulum einúngis taka það fram, að hjú og vinnufólk í borgum og stórbæjum er nú orðið svo óþolandi skríll að ekki tekur

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.