Gefn - 01.01.1872, Page 31

Gefn - 01.01.1872, Page 31
33 á heyrnareðli hennar, þá hlyti þessi vera að heyra sólar- geislana, en hún sæi þá ekki: sólskinið væri ekki til fyrir henni nema sem hljómur, eða sjöfalt hljóð, þar sem rauði geislinn væri dimmasta, en fjólublái geislinn hæsta eða mjósta röddin, eins og hljóðfærisstrengur hljómar því mjórra sem hann skelfur tíðara, en dimmra eptir því sem hann skelfur minna; og þetta er hin eiginlega harmonia coelestis sem Pythagoras hafði óljósa hugmvnd um og framsetti því ránglega svo sem tilheyrandi himintúnglunum, og sama gerði jafnvel Kepler miklu seinna. Ljós, hiti og hljóð, eru allt- saman hræríngar, en hljóðið er fyrir vorum eyrum í loptinu, ljósið og hitinn þar á móti í »ljósvakanum« (sem raunar er ónógt orð af því það nær ekki til beggja hugmyndanna). Hvað þessi »ljósvaki« sé, það veit enginn, enginn hefir séð hann og hann er ómerkjanlegur og ófinnanlegur öllu mann- legu eðli; en vér neyðumst til að álíta að hann sé til: vér neyðumst til að álíta að þetta efni sé til, sem vér köllum ljósvaka, að það gáugi í gegnum allan heiminn og alla lík- ami, því annars gæti Ijós og liiti ekki verið til; ljósvakinn veldur ljósinu og hitanum eins og loptið veldur hljóðinu; óg eins og vér getum mælt hraða loptbylgjanna af hljóðinu — það ferllöO fet á sekúndu — eins getumvér afljósinu komist eptir hraða ljósvakans — hann er 30,000 mílur á sekúndu — og vér finnum, að hann er allt annað en loptið: loptið er þúngur líkami, sem vér finnum til (svo sem þegar hvast er); Ijósvakinn hefir engaþýngd, en hann er í loptinu og fer í gegnum það eins og vatn í gegnum njarðarvött. Geislar eru ekki allir sýnilegir: vér sjáum ekki hita-geislana, en vér finnum til þeirra; þeir verða einnig af skjálfta ljós- vakans, en skjálfa enn minna en rauði geislinn og svara því til enn dimmri raddar; þeir eru því en lægstu hljóð ljós- vakans; þar á móti eru en hæstu hljóðin ekki fjólubláu geislarnir, lieldur aðrir, einnig ósýnilegir, það eru hinir »kemisku« geislar, sem hafa efnislega verkan, en hvorki hita né ljós: það eru einmitt þessir geislar ljósvakans, sem 3

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.