Gefn - 01.01.1872, Page 34
36
aptur að lopti, þá koma sólblettirnir. A sólinni er því sífelt
og ógurlegt eldregn, stormbvljir og eldgos án aöáts, sem
ekkert mannlegt ímyndunarafl getur gert sér hugmynd um.
J>egar almyrkvi er á sólu, þá sjást eins og glóandi hrafur
eða fjöll á yfirborði hennar; hæð þessara »fjalla« hafa menn
vel getað reiknað: þau hafa verið yfir 10,000 mílur að hæð,
en það merkilegasta er að menn hafa séð þau á svipstundu
rísa upp og hníga aptur niður; braði þessarar hreifíngar hefir
verið svo ofsalegur, að það verða 3000 mílur á hverri se-
kúndu — það má nærri geta, að þetta eru engin veruleg
fjöll, einkum þar sem þessar hæðir stundum standa upp í
loptið eins og strókar og bogna útá við eða hrynja niður
að mönnum ásjáandi. þetta má sjá hvenær sem vill í lit-
uðum glerum, en samt ekki nema með sterkum sjóufærum;
en það kemur til af því, að ljós þessara hæða er margfaldt
daufara en sjálft sólarljósið eða geislahafið í kríngum sólar-
hnöttinn -- það eru eldslogar, sein gjósa fram úr sólar-
djúpinu, tíu sinnum lengri en þvermælir jarðarinnar; það eru
eldmökkvar sem þjóta fram eins og stormvindur, og hrynja
aptur niður í sama stað. Að jörð vor hafi verið líkt á sig
komin, á meðan hún var að myndast, þykir mjög sennilegt;
en því minni sem hnötturinn er, því styttri tíma þarf hann
til að þéttast og kólna, svo haun geti orðið bústaður lífsins.
J>annig hefir og túnglið verið — eða hverr getur sannað,
að túnglið ekki sé legstaður lifandi manna? Æfi og mynd-
anartíð þessara hnatta skiptir millíónum ára; og á þessari
æfi er nokkurr tími, sem hæfilegur er til lífsins, þegar and-
inn dafnar og mennirnir berjast; en tíminn líður og hnött-
urinn stirðnar og kólnar, og lífið deyr — hann verður eins
og túnglið, sem á hverri nóttu stendur á himninum eins og
köld heljarspá um vora eigin jörð. Og þegar vor jörð er
orðin eins og túnglið, þegar sólin verður að »jörð« með
lifandi og skynsömum verum — hvað lýsir þá þeirri jörð?
2. Rannsóknirnar um uppruna og ættleiðíngu jurtanna
og dýranna er hið annað merkilega atriði í skoðan mannanna