Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Side 23

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Side 23
ÁRFERÐ OG ATVTNNUVEGIR. 23 nyrðra. í sumum skipum var matvara orðin svo skemmd af hafvolkinu, að liún varð ei seld, og var svo selt við uppboð, en sumu fleygt. Jumnig var um eitt skip, er kom á Sauðár- krók. Norðlendingar, einkum Húnvetningar, liöfðu stofnað sjer til vörupantana mikilla hjá Coghill hrossakaupmanni, en pegar til kom, komst skip hans aldrei neitt fyrir hafísnum, og var svo pað fyrirtæki fallið. TJm sumarið var skortur mikill á vöru- birgðum nyrðra, og á Eyrarhakka, sem von var, pví að allir peir, sem nokkru gátu um pokað, keyptu korn handa fjenaði sínum. Syðra var verzlun heldur hagstæð, verðlag heldur betra en áður; kaffi var.nú eigi d/rara en 50—58 a., sykur 45 a. en matvara var lík og áður. Saltfiskurinn var 65—70 kr. skippundið. Sum- staðar vestra, t. d. undir Jökli var verðlagið öllu verra, sem vant er að vera, t. d. um vorið var par fiskijórðungrinn 1 kr. en brenni- vínspottrinn 1 kr. 20 a., svo að 12 pund fiskjar purftimótipottinum. TJllin nyrðra var víðast 80 a. Haustverzlun var ákaflega mikil og afskapleg fjártaka, einkum á Akureyri. Kjötverðið var 14—20 a., mör 33 a., gærur 1,50—3,00. Skip komu og pangað frá Noregi með allar nauðsynjavörur, og verzluðu víðsvegar með firðinum, og póttu hin beztu kaup við pá. Tvö skip strönduðu um haustið, annað í Keflavík, hitt á Yatnsleysuströnd og gjörði pað nokkurn verzlunarhnekki. |>að kom mönnum nú að góðu haldi par sem ménn purftu svo mjög að fækka pví fje sínu, sem eptir var, að Slimon í Leith lætur Coghill, erindreka sinn, reka hjer fjárverzlun í landi. Coghill varð nú mörgum sannur bjargvættur, pví að annars hefðu menn eigi haft hálft verð upp úr fje sínu með pví að skera pað niður heima eða láta pað í misjafnar verzlanir. Hann fór um haustið í vesturhluta J>ing- eyjarsýslu, Eyjafjörð, Skagafjörð, Húnavatnssýslu, Strandasýslu sunnan til, Dalasýslu og til Stykkishólms, og keypti á pessu svæði rú-mar 22000 fjár, og nærfelt 1500 hross. Eyrir sauðfjeð gaf hann að jöfnuði 16,50 fyrir kindina, og fyrir hrossin í kring um 50 kr. fyrir hvert. Fjenaður pessi nam rúmlega 466,000 kr. og var pað mestalt borgað í peningum. En pó að fje petta sje mikið í munni, er pað pó langt frá að vera gróði fyrir landið, eins og sumum, svo sem útlendingum, sem ekki eru kunnugir hvernig hjer hagar, hefir fundizt. Ýmsir aðrir keyptu og hross til pess að flytja pau út, en fáir aðrir

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.