Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Qupperneq 27
FELLffi OG HARÐRJETTI.
27
pess af sandi og möl, og sýktist svo fjenaðurinn og dó. Tlng-
lömb tyndu tölunni um allt land, og víða var svo, að engar
fráfærur urðu, og engi ær í kvium, og óvíða nema lielfingur
og þaðan af færra. Ilnglambadauðinn spratt eigi einungis af
pví, að ærnar fæddu eigi, heldur og af allskonar sýki og ótir-
mingu, vatnssýki við hjartað, mýlum og öðru slíku. Hross
týndu og mjög tölunni, einkum tryppi, bæði í peim sveitum,
er vjer höfum áður nefnt, og svo líka 1 Skagafirði, sem vant
er að vera pegar nokkuð harðnar. Kýr voru víða skornar af
heyjum, bæði vegna pess, að skortur var fyrir sjálfar pær, og
svo líka sumstaðar til pess að geta miðlað af töðu til annara
skepna, Kornmatur mikill var keyptur víða í verzlunarstöðum
til pess að gefa fjenu,'pó að pað sje ærið dýrt, en pað lakasta
var, að pað dugði eigi til. Verzlanirnar tæmdust, og ekkert
fjekkst meira; fjenaðurinn dó samt, pegar ekkert var lengur til,
og fjöldi bænda, einkum eystra og vestra, stóð uppi skepnulaus
og allslaus með punga byrði verzlunarskulda á bakinu, og gat
svo ekkert fengið handa sjer og hyski sínu, pegar ekkert var
nema skuldirnar í aðra hönd.
Nákvæmar skýrslur um fellinn höfum vjer eigi getað fengið
nema úr einstöku sveitum og hjeruðum, en pó nokkurn veginn
nákvæmar úr peim sveitum, sem verst eru farnar, t. d. Snæ-
fellsnessýslu, en alls engar úr Strandasýslu og af Rangárvöll-
unum. Yjer setjum hjer lítinn útdrátt úr skýrslu, sem hefir
komið úr Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, án pess pó að hinda oss
við nákvæmar tölur, pví að skýrslan var alls eigi nákvæm úr
sumum hreppum; par voru skornar af heyjum um 24 kýr, en
sem fellipeningur dóu hjer um bil 4600 ær, rúmlega 2200
geldar ær og sauðir tvævetrir og eldri, 3500 gemlinga, yíir 6000
unglömh, yfir 400 hestar og undir 400 tryppi; var fjenaður
pessi alls metinn rúmlega 175,000 kr. |>etta er eigi lítill
hnekkir fyrir eina sýslu. í Dalasýslu fjellu 12 kýr, 154 hross,
3000 ær, undir 1000 roskins geldfjár, 2700 gemlingar, og undir
6400 unglömb. í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu fjell 66
kýr, 30 kvígur, 214 hross, 130 tryppi, 4500 ær, 550 sauðir,
4000 gemlingar og 4000 unglömb. |>etta er alls á svæðinu
milli Skarðsheiðar og Oks að sunnan, og Gilsfjarðar að vestan
um 136 nautgripir, 12100 ær, 3750 geldfjár, 10200 gemlingar,