Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Qupperneq 29

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Qupperneq 29
FELLIR OG HARÐRJETTI. 29 J>egar heljarfregnirnar um ástandið og harðrjettið á íslandi hárust til útlanda, var pegar víða farið að gangast fjrir að safna gjöfum. I Danmörku stóðu mest fyrir samskotum landshöfðingi vor, Hilmar Finsen, eptir að hann kom til Hafnar, og H. A. Clausen, etazráð; var með peim nefnd manna, er stóð fyrir samskotunum. Gáfu par margir höfðinglega, og má helzt til nefna konung vorn og drottning hans, 2000 kr., krónprinsinn og krónprinsessan 1000 kr., margir kaupmenn 500 kr. hver o. m. fl. Var svo ótrauðlega gengizt fyrir samskotum pessum, að í októbermánuði námu gjafir í Danmörku nærfelt 150,000 kr. Sumt af pessu fje var sent til íslands til útborgunar í peningum, en sumt í matvöru og fóðurbirgðum. Komu pá með póstskipinu í október 2310 tunnur kornmatar, 10 tn. hveiti- brauðs og 1200 tn. úrsigtis, og auk pess 400 «ballar» af heyi. Varð petta til mikils styrks; pá var og safnað gjöfum í Svípjóð og Noregi. í Noregi söfnuðust og voru sendar 6000 kr. írá Helland, er ferðaðist hjer árið áður, og svo komu 500 kr. frá Lehmkul kaupmanni í Björgyn, er haft heíir síldarútgjörð við Austurlandið. Dr. Ph. Schweitzer í Jena safnaði gjöfum í J>ýzka- landi, og sendi pær Helland um árslokin. Svo var og eitthvað safnað í Ameríku, en eigi er oss frekara um pað kunnugt. Af íslenzlrum kaupmönnum gaf stórkaupmaður W. Fischer 1 Keykjavík 5000 kr., er skyldi varið að eins til styrktar Borgar- fjarðar- og M/rasýslum. Lagði hann svo fyrir, að hver sýslan skyldi hljóta 1000 kr. virði í matvörum og 1500 kr. í pening- um, og skyldi sýslunefndin útbýta pví. Skáldið William Morris og Mag. Eiríkur Magnússon gengust fyrir samskotunum á Englandi. Var borgarstjórinn í Lund- únum (Lord Mayor) formaður nefndarinnar. Söfnuðust par saman á stuttum tíma 4800 pund sterling (86,400 kr.); en pegar minnst varði var farið að hamast í enskum blöðum á móti gjöfunum, og barið fram að harðindin, sulturinn og seiran á íslandi væri bábyljur einar og pvættingur. Rjett 1 pví að pessi kvittur gaus upp, lagði Eiríkur Magnússon upp með gjafirnar á gufuskipi frá Englandi, og voru á pví 350 smálestir (hver smálest [tonj 10 tunnur) matvöru, og nokkuð af heyi.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.