Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Síða 44
44
VÍSINDALEGAR RANNSÓKNIR.
hjálpa til pess að ná í pá. |>etta má kallast mikið að gjört á
einu sumri af fjelagi, sem eigi heíir meiri fjárráð en fornleifa-
fjelagið hefir. Aðalskýrsla um ferðir pessar og uppdrættir af
stöðvunum helztu er ætlazt til að komi út í Árbók fjelagsins
1883.
Hjer á undan, í stjórnarkafianum, er pess getið, að |>or-
valdi Thóroddsen var veittur fjárstyrkur til pess að rannsaka
Austurland um sumarið. Fór hann síðast í júni af stað, og
rannsakaði fyrst hraun og gíga í Laxárdal og laugarnar í Ljósa-
vatnsskarði og Reykjadal. Hraunin í Laxárdalnum hafa í fyrnsku
ollið upp um glufur í jarðveginum, og sjást jarðlögin eldri
beggja vegna. J>aðan fór hann að Mývatni og kannaði par
eldmenjar hinar miklu, einkum Leirhnúk, Bjarnarflag og
Krossadal. J>aðan fór hann að Grímstöðum á Fjöllum. J>egar
hann fór að kanna landið par um kring, reyndist uppdráttur
Bjarnar Gunnlaugssonar mjög ófullkominn um óræfin par efra
upp undir Vatnajökul; par eru víða um óræfin tindar, fjall-
garðar, ár og vötn, er annaðhvort vanta að fullu og öllu eða
standa í rangri afstöðu hvað við annað. J>ar fundust fornlegar
bæjarústir, bæði efst í Jökuldal, Laugarvalladal og Hrafnkels-
dal; hinn síðastnefndi er eigi rjetturá uppdrættinum. FráBrú
á Jökulsdal fór hann austur í Fljótsdalshjerað til að skoða
surtarbrandslögin, sem par eru, og síðan paðan yfir Skriðdal til
Eskifjarðar. Við Skriðdalinn er fjallaklasi kringum Sandfell úr
baulusteini (trachyt), er aldrei hefir verið kannað áður, og eru
par mjög margar merkar jarðmyndanir. Á Eskifirði dvaldist
Thóroddsen góðan tíma, til pess að kanna silfurbergsnámann í
Helgustaðafjalli, og taka uppdrátt af honum og stöðvum hans.
Náminn er í gili einu litlu, 270 fet yfir sjávarflöt, og hefir
lækur grafið niður að silfurberginu. Námagróíin er 36 fet á
breidd og 72 fet á lengd, og er silfurbergið par í lögum innan
um blágrýtið. Mestalt er pað ógagnsær rosti en innanum hitt-
ast vatnstærir steinar. Eptir áætlun Thóroddsens er allmikið
silfurberg enn í námanum, en óvíst er samt, að pað svaraði
kostnaði að leggja alúð á að vinna hann. J>aðan fór hann suður
með öllum Austfjörðum suður á Álptafjörð, og paðan upp Hofs-
dal, yíir Hofsjökul hin eystra pveran, og paðan niður í Víðidal.
Jökull pessi er brattur mjög, og yfir 3500 fet á hæð, en góður