Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Page 5
Lðggjöf og land8stfórn.
7
pau vóru sampykt óbreytt eins og þingið 1885 hafði skilið
við þau. í báðum deildum vóru settar nefndir í pau, enn
pær réðu til að sampykkja pau óbreytt að pessu sinni, prátt
fyrir hina konunglegu auglýsingu frá. 2. nóvbr. f. á. Lands-
höfðingi hélt sér til hennar fyrir stjórnarinnar hönd (sjá Fr.
f. á., bls. 11), enn taldi auk pess ýmsa galla á frumvarpinu,
einkanlega ýmsa bága við stöðulögin 2. jan. 1871, svo að pað
aldrei mundi verða staðfest. Nokkrar breytingartillögur við pað
komu að eins frá einum pingmanni (dr. Grími Thomsen), er
var frumvarpinu sampykkur að öðru levti; enn pær vóru allar
feldar. Að síðustu greiddu atkvæði í móti pví í neðri deild:
dr. Grímur Thomsen og dr. Jónas Jónassen; hann talaði pó
ekkert móti frumvarpinu. í efri deild greiddu atkvæði móti
pví; allir (4) konungkjörnir pingmenn, er atkvæðis gátu neytt,
nema Hallgrímur dómkirkjuprestur Sveinsson, er einnig hafði
greitt atkvæði með pví fyrra árið; pó komu engar breytingar-
tillögur við pað frá hendi mótmælenda pess í efri deild. A
sama hátt gekk fylgilögum stjórnarskipunarlaganna, enn pau
vóru;
2. Lög um kosningar til alpingis (hlutfallskosningar um
land alt á 12 pingmönnum til efri deildar, enn einfaldar kosn-
ingar í 24 kjördæmum á 24 pingmönnum til neðri deildar).
3. Lög um ráðgjafa-ábyrgð.
4. Lög um laun nýrrar landsstjórnar samkvæmt stjórn-
skipunarlagafrumvarpinu. (Landsstjóri skyldi fá 15000 kr. árs-
laun og leigulausan bústað, hver ráðgjafi 6000 kr. á ári og
hver skrifstofustjóri hjá peim 3000 kr. og til skrifstofukostnaðar
á ráðgjafaskrifstofunum alt að 8000 kr. árlega).
5. Lög um afnám embætta (landshöfðingja, landritara,
landfógeta og amtmanna; »enn fremur skulu versleg störf
greind frá biskupsembættinu«. Niðurskipun á störfum pessara
embætta var frestað, enn hinni nýju landsstjórn samkvæmt
stjórnskipunarlagafrumvarpinu gert að skyldu að »leggja fyrir
hið fyrsta reglulega alpingi, er kemur saman eftir að hin endur-
skoðuðu stjórnskipunarlög hafa öðlast gildi, frumvarp til laga
um skipun framkvæmdar- og umboðsvaldsins«). Staðfesting allra
pessara fjögra síðast töldu laga var bundin staðfestingu stjórnskip-
unarlaganna, enn 29. sept. félst konungur eftir tillögu ráðgjafans á,