Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Síða 23
Kirkjumál. 25
og áhöldum kirkjunnar skift milli Skarðs, Arbæjar og Marteins-
tungu kirkna. — Til skýringa um kirhjuUjiö í Reykjavík má
hér nefna áskoranir pær og bendingar til sóknarmanna, er
j>ar vóru sampyktar á almennum safnaðarfundi petta ár, til
eflingar kristilegu helgihaldi og góðri reglu og siðsemi í söfn-
uðinum. fær vóru: 1. að reyna að vinna formenn í sókninni til að
bindast föstum samtökum um, að róa eigi tilfiskjar eða vitja um
net á helgum clögum, nema brýn nauðsyn krefji og að stuðla
eftir megni til pess að samkynja samtök kornist á í næstu
veiðistöðum par { grend. 2. að reyna að vinna járnsmiði til
að bindast samtökum um, að fást eigi við hestajárningar á
helgum dögum, nema hrýn þörf sé á því. 3. að reyna að
vinna kaupmenn til að láta hvorki jerma né afferma skip
sín á hélgum dögum, nema veruleg nauðsyn krefji. 4. að reynt
sé að afstýra peim ósið, að menn á helgum dögum séu að fugla-
veiðum sérstaklega í hænum eða á höfninni eða injög nærri
bænum, hvort heldur er á sjó eða landi. 5. að skoia á lög-
reglumenn og aðra fullorðna menn að afstýra pví, að ung-
lingar séu hóptim saman úti við leika (knattleik, skautahlaup
o. s. frv.) um messutímann, einkanlega, að slíkt fari fram ná-
lægt kirkjunni. 6. að skora á menn alment, að hafa eigi ó-
kyrð eða umgang i kirkju á meðan guðspjónustan stendur
yfir og biðja ekki einungis sóknarnefndarmenn, heldur og aðra
sem geta, að afstýra öllu slíku. 7. að skora á foreldra og
húsbændur að áminna unglinga og börn um, að troðast eigi
um of inneftir kirkjunni, pegar börn eru fermd, og valda með
pví þrengslum og glepja fermingarbörnin á alvarlegri stundu.
8. að vara menn við, að þyrpast of þétt saman í kórnurn við
altarisgöngu. 9. að skora á menn að haga svo til, að hjóna-
vígslur í kirkjunni fari jafnaðarlega fram við dagsbirtu, enn
sem sjaldnast við ijós, allra síst á laugardagskvöldum; sömu-
leiðis að gæta pess, að brúðhjón og boðsfólk sé komið í kirkju
á ákveðnum tíma, svo athöfnin purfi eigi að dragast fyrir sein-
læti þeirra. 10. að reynt skuli til að koma pví til leiðar, að
þeir sem fara í skemtireið á helgum dögum, fari af stað úr
bænum annaðhvort tímanlega að morgni eða eigi fyrri enn að
aflokinni messugerð, enn varist að fara af stað rétt fyrir messu
byrjun, eða á meðan hún stendur yfir, 11. að reynt sé að