Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Qupperneq 25

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Qupperneq 25
ÁrferBi. 27 jan. var mesta afspyrnurok á austurlandi; fauk pá nýsmíðuð kirkja á Kálfafellsstað í Suðursveit af grunni og brotnaði, menn týndust, fiskhús fuku, fjárhús rauf, skútur rak upp og um 1000 fjár fórst par; seinast í febr. batnaði nokkuð og var gott og stilt veður mestallan mars, einkum sunnanlands og tók snjó upp nokkuð; enn seinast í mars gerði ofsa-norðanveð- ur um alt land og illviðri (mest frost í Reykjavík pá 13° C., við Eyjafjörð 15° C.); pá rak hafís mikinn að norður- og vest- urlandi, enda hafði liafís-hroði pegar sést par í janúar og hélst hafís par, einkum við Strandir, allmikill, ýmist landfastur eða skamt undan landi alt fram í ágústmánuð; bægði hann strandferðaskipunum tvisvar sinnum frá pví að halda ferða- áætlun sína og tálmaði siglingum nokkuð, enn pó minna enn von var á og vóru kaupfor komin að norðurlandi á allar hafn- ir (nema Borðeyri og Baufarhðfn) pegar í maí. J>etta harð- indakast stóð miklu lengur og var harðara á norður- og vest- urlandi enn á suður- og austurlandi; par batnaði pað fyrri hluta aprílmán. og tók par upp snjó og gerði gott veður yfir höfuð síðari hluta apríl og fram í maí; norðanlands og vestan var og allgóð veðrátta um tíma um páskaleytið. Mestallan maí var kuldaveðrátta um alt land, pó einkum vestanlands og norðan og stafaði hún af hafísnum, sem pá rak vestnorðan að landinú (í 3. sinn) og hindraði og spilti mjög gróanda, par sem hann var kominn; hélst hún fram í júní; pannig kom jörð t. d. í Fljótum og á Skaga ekki upp fyr enn undir fardaga; pó var vorið ekki kallað mjög hart á suðurlandi nema í Borgar- firði. Sláttur byrjaði á norður- og vesturlandi ekki fyr eða litlu fyr enn í fyrra, enn á suðurlandi um miðjan júlímánuð; vóru par perrar allgóðir framan af slætti, enn á norðurlandi pá oftast pokur og deyfur, og í ágústmánuði vóru dæmafáir ó- perrar um land alt, nema á suðurlandi með köflum, og héld- ust peir fram í september; gerði pá oft bleytu-köfóld og snjó- drífur, einkum á vestur- og norðurlandi, svo að menn urðu alloft verklausir svo dögum skifti um heyanna-tímann. A suðurlandi vóru svo miklar rigningar í september-byrjun, að á Kjalarnesi hlupu skriður allmiklar úr Esjunni á tún og engjar og spiltu mjög 9 jörðum, og ár báru víða grjót og leir á eng- jar og ónýttu hey að mun í Kjós og Mosfellssveit, og haustið

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.