Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Blaðsíða 33
Bjargræðisvegir. 35
þar var mönnum »stefnt fyrir 2—4kr.« skuld og »sumir knúð-
ir til að skrifa undir harðar skuldhindingar*. Menn urðu því
nú að lóga fé um haustið miklu meir enn áður, hæði til að
halda lífi. 1 sér og vegna kaupstaðarskuldanna, auk þess sem
hinn litli og ódrjúgi heyfengur studdi að því. Fjárverslun
Skota (Slimons og Coghills) varð nú þar á ofan verri enn und-
anfarin ár; sökum fjártjóns þess, er þeir höfðu beðið fyrra árið,
gáfu þeir nú fyrir bestu sauði á suður- og norðurlandi ekki
meira enn 14 kr. og fjöldann þar undir, enn í Múlasýslum
hæst 17 kr. 50 au., þvíað þar þykir sauðfé vænna. Enn
Skotar ráða hér öllu fjársöluverði að heita má, nema að nokkru
leyti ekki í Reykjavík. Fyrir hesta (3—8 vetra) gáfu þeir
Slimon og Coghill vanalega ekki meir enn 30—50 kr. I þess-
um verslunarókjörum leituðu menn nú helst þeirra úrræða, að
koma vörupöntunarfélögum á fót; vóru slík félög stofnuð í
Múlasýslum og í Dalasýslu og þóttu reynast vel og vonum
framar, er miðað var við verslunarúrkosti hér annars; vóru því
fleiri sýslufélög eða nokkrir menn að hugsa um að koma slík-
um félögum upp hjá sér, t. a. m. einu við Önundarfjörð. Kaup-
félagi fingeyinga gekk og vel þetta ár og efldist það töluvert;
það var í 20,000 kr. skuld við árs byrjun við erlenda viðskifta-
menn, enn losaði sig við hana. |>essi heppni og uppgangur
þessara pöntunar- og kaupfélaga stafaði mest af því, að sauða-
sala gekk vel á Englandi nú, og að þau fengu útlendar vörur
með mun lægra verði enn í verslunum landsins. öll þessi fé-
lög kostuðu kapps um að senda sem vænst fé á útlenda mark-
aði og enga kind rýra; þannig lét kaupfélag pingeyinga enga
kind fara, er minna vó enn 100 pund, og létu pundsverðið
hækka um 1% við hvern tug í þyngdinni þar fyrir ofan, og
þykir það reynast miklu happasælla og lang-gróðavænlegast.
pótti það nú verst við sauðakaup þeirra Slimons og Coghills,
og eins margra kaupmanna hér, að ekki væri gerður hæfilegur
munur á rýrum og vænum kindum. Alt fyrir það fengu þeir
Slimon hér margt fé og náðu nú upp miklu af tjóni því, er
þeir biðu í fyrra. Hingað kom nýr fjárkaupmaður frá New-
castle þetta ár til að keppa við þá Slimon, Lauritzen að nafni;
hafði hann áður haft viðskifti við kaupfélag fingeyinga; mis-
3*