Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Page 37
Bjargræbisvegir. 39
og »söngfólag skólapilta« hélt nokkrúm sinnum. í Ttrieyjar-
kvennaskóla og á Akureyri vóru og leiknir sjónleikir, og ef til
vill fleiri kaupstöðum, eins og verið hefir stöku sinnum ýmsa
undanfarna vetur. — Af öðrum bindindisfélögum er annars
ekkert að segja, nema að pau vilja reynast völt og ótrygg.
Samt má telja víst, að vínnautn hafi farið mjög minkandi
petta ár, og eiga bindindisfélögin góðan pátt í peirri fram-
för.
VI. Skaðar og slysfarir.
Skaðar af skipströndum og eldsvoðum vóru ekki miklir
petta ár, pótt livorttveggja kæmi fyrir; strönduðu 5 franskar
fiskiskútur um veturinn og fórust allir (10) menn af einni.
Aftur á móti urðu allmiklir mannskaðar hér á landi af
slysförum, og skulu hér taldar upp pær slysfarir, er heyrst
hafa: I jan. (6.) fórst bátur með 4 mönnum á leið úr Stykkis-
hólmi undir Jökul. 7. urðu 6 menn úti á austurlandi í roki
pví, er að framan er getið (bls. 27), og vóru 3 peirra við fé,
enn marga kól; pá fórst og bátur á Norðfirði með 4 mönnum
ísl., 1 kvonguðum, er lét eftir sig 7 börn flestöll í ómegð. J>á
drukknuðu og 5 Norðmenn af báti, og peir mistu mikið af bát-
um og skipabúnaði. í febr. (aðfaranótt hins 4.) hljóp snjófióð
á Sævarenda í Fáskrúðsfirði; 4 menn, er sváfu undir lofti,
týndu lífi, enn fólk (8), er var á lofti, bjargaðist út um glugg-
ana. 21. týndist maður á leið frá Eyrarbakka út á porláks-
höfn, drukkinn mjög. I mars (4.) fórst sjómaður úr Húna-
vatnssýslu á Svínaskarði 1 Kjós á leið til sjóróðra suður; datt
hann ofan í vatnsker í fönn í gili einu, og náðist eigi fyr enn
daginn eftir. 13. drukknuðu 2 menn af báti á Seyðisfirði; lét
annar, er var kvongaður, eftir sig bláfátæka ekkju og 3 börn.
í apríl (7.) rákust á frönsk fiskiskúta og ísl. tólfæringur af
Miðnesi í Gullbringusýslu með 18 mönnum, fram undan Mið-
nesinu; brotnaði íslenska skipið og drukknaði einn af pví; var
Frökkum fremur kent slysið; enn ekki varð pó af skaðabótum