Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Side 42
44
Heilsufar og lát heldri manna.
stofnaði blaðið »Norðanfara« 1860, er hann hélt úti pangað til
í fyrra (um 25 ár; sjá Fr. f. á., bls. 52); sjálfur kom hann sér
upp »prentsmiðju (Norðanfara«), er hann vatð að sleppa hinni
(1876). Hann ritaði sjálfur fremur lítið í hlað sitt, enn fékk
framan af góða og vel hæfa menn til að rita fyrir sig. Hann
var kosinn þjóðfundarmaður 1851 fyrir Norðurpingeyjarsýslu
og gegndi mörgnm og margvíslegum mikilsvarðandi störfum á
Akureyri, par sem hann dvaldi síðan til dauðadags (20. júní).
Hann var tvíkvæntur; fyrst; önnu Arnadóttur frá Reistará
(f 1866) og síðar Hermannínu Kr. Finnbogadóttur.
Daniel dbr.m., hreppstjóri og sýslunefndarmaður Jónsson
(bónda Daníelssonar), fæddur á Sveðjustöðum í Miðíirði í des-
ember 1821; fór á barnsaldri með móður sinni að þóroddstöð-
um í Hrútafirði og var par síðan alla ævi og pótti besti bóndi,
félagsmaður og hjálparvættur sinnar sveitar. Hann kvæntist
(1848) Valgerði Tómasdóttur frá Broddanesi, enn lét ekkert
barn eftir sig á lífi. Hann létst 23. okt.
Jón Jónsson (prests Jónssonar prests lærða í Möðrufelli Jóns-
sonar) á Æsustöðum í Eyjafirði, góður og gildur bóndi, létst
17. október. Kona hans var Vilborg ljósmóðir Pétursdóttir
frá Anastöðum í Hjaltastaðapinghá og lifði hann með 2 dæt-
rum.
Jón hreppstjóri og hreppsnefndaroddviti Pálmason (bónda
Jónssonar), fæddur í Sólheimum í Húnavatnssýslu 10. júlí 1826;
ólst upp hjá foreldrum sínum, til pess er hann misti föður
sinn (1846), tók pá við bústjórn fyrst með móður sinni í Sól-
heimum og síðan (1848) reisti hann par sjálfur bú; þaðan
fiuttist hann að Stóradal í sömu sýslu og bjó par síðan til
dauðadags (9. okt.); pótti mesti framkvæmdar- og fyrirmyndar-
bóndi; hann var kosinn á amtsfundinn á Akureyri 1858 og
oftar enn einu sinni á þingvallaíund; liann sat sem varaþing-
maður Húnvetninga á aipingi 1863 og 1865. Hann kvongað-
ist (1848) Ingibjörgu Salóme porleifsdóttur frá Stóradal; þeirra
son þorleifur ritstjóri auk 3 annara barna á lífi..
porsteinn Jónsson, hreppstjóri og alþingismaður, fæddur
11. maí 1840 í Sólheimum í Mýrdal; fluttist til Vestmanna-