Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Blaðsíða 43
Heilsufar og lát heldri manna.
45
eyja 1861 og dvaldi þar síðan. Hann sat sem þingmaður
Vestmanneyinga á öllum löggjafarpingum vorum, enn lét þar
lítið á sér bera, þóað mikið þætti til hans koma í sveitarfélagi
hans. Hann kvongaðist (1861) Kristínu Einarsdóttur, ekkju
oand. theol. Magnúsar Jónssonar Austmanns og varð þeim eigi
harna auðið. Hann létst í íteykjavík 28. ágúst eða 2 dögum
eftir að þingi var slitið, enda hafði hann verið lasinn fyrir og
um þingtímann, þótt hann að öllum jafnaði sækti þingfundi
næstum framúr.
Af látnum merkiskonum eru nefndar:
Elinborg Pétursdóttir (prófasts Péturssonar frá Víðivöll-
um), fædd 1. nóvbr. 1805, ekkja séra Sigurðar Arnórssonar
(f 1866), síðast prests að Mælifelli, létst 9. febr. að Sjávurborg
hjá syni sínum Pétri kaupmanni Sigurðarsyni.
Marie Nikoline Finsen, dóttir Ole Möllers kaupmanns í
Reykjavík, fædd 28. apríl 1803, ekkja Ólafs (Hannessonar bisk-
ups) Finsens yfirdómara (f 1836), er hún giftist 1820; þeirra
börn, er uppkomust: dr. Vilhjálmur hæstaréttardómari, di. Jón
stiftslæknir (sjá Pr. f. á., bls. 43—44), Hannes stiftamtmaður í
Rúpum, Ole póstmeistari í Reykjavík og frú Valgerður síðari
kona Halldórs prófasts Jónssonar á Hofi (f 1881). Hún létst
27. nóvember.
Solveig ljósmóðir Pálsdottir (prests Jónssonar »skálda<),
fædd í Vestmannaeyjum 8. okt. 1821; nam ljósmóðurfræði í
Khöfn og gegndi ljósmóður-embætti í Vestmannaeyjum 1842
—1867, enn síðan í Reykjavík til dauðadags (24. maí); giftist
1845 Mattíasi trésmið Markússyni (fórðarsonar prests á Álfta-
mýri) og áttu þau 9 börn, er 7 lifa uppkomin.
pórunn PLannesdbttir (biskups Finnssonar), fædd 30. júlí
1794, ekkja Bjarna amtmanns J>orsteinssonar (f 1876), er hún
giftist 22 júlí 1821; þeirra synir Árni landfógeti og Stein-
grímur skáld, kennari við lærða skólann í Reykjavík; hún létst
28. mars.
Hér má og geta láts Jóhönnu Kristíönu Ounnlaugsdótt-
ur (sýslumanns Briem frá Grund í Eyjafirði), er fædd var 20.
janúar 1806 í Arnarbæli á Fellsströnd; fór 18 ára gömul til