Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Side 54
56 íslendingir 1 Vesturheimi.
skotið af frakkneska gætsluskipinu minna, er pá lá á höfn-
inni.
IX. Íslendiiigar í Vesturheimi.
Til Vesturheims flutt'ust héðan petta ár um 500 manna, og
var mikill ferðahugur pangað 1 mönnum hér á landi og gátu
færri komist enn vildu vegna árferðisins; flestir fluttust til Kanada,
einkum »J>ingvalla«-nýlendunnar (sjá Fr. f. á., bls. 56), enda höfðu
Bandamenn ýfst við innflutningi manna, enn Kanadastjórn tók
fegins hendi móti innflytjöndum og sendi hingað sem útflut-
nings-fulltrúa sinn íslenskan mann, Baldvin L. Baldvinsson. —
Margir Isl. settust petta ár að í Washington Territory í eignum
Bandamanna vestur við Kyrrahaf og nokkrir höfðu setst að
á eynni Vancouver í Kyrrahaíinu í eignum Breta. Ekki urðu
nýbygðir íslendinga fyrir neinu stórtjóni né óskunda petta ár;
pó biðu einhverjir peirra í Nýja-Islandi tjón af skógaeldi, er
par geisaði í ágúst, og sléttueldur mikill (í október) gerði og
víðar íslendingum tjón í Manitoba-fylki. Alls vóru íslendingar í
Vesturheimi petta ár taldir um 6000; lifa peir flestir saman i
ýmsum nýbygðum til og frá, og í Winnipeg-borg vóru um 1000
Islendingar, enda má par kallast höfuðstöðin. J>ar er fjöl-
breyttust atvinna peirra og líf; vóru par 7 íslenskar verslanir
petta ár og ein herdeild par (í »Winnipeg Light Infantry«)
var skipuð íslenskum mönnum (um40); par eru og félög meðal
íslendinga(»Framfara-félag«, »Kvenfélag«, söngfélag og bindindis-
félag, stofnað fyrir 2 árum) og eins eru í Dakota ýmis félög. f>ó er
ekkert allsherjar-félag til fyrir Islendinga í Vesturheimi, nema
»hið evangelska lúterska kirkjufélag«, er komist hafði á árið
áður, mest fyrir forgöngu Jóns Bjarnasonar prests í Winnipeg-
söfnuði; pó höfðu petta ár ekki nærri allir söfnuðir íslendinga
vestra gengið í félag petta. Félagið studdi pó mjög að sunnu-
dagaskólum peim, er komnir eru á sumstaðar meðal Islendinga,
og pað hélt úti kirkjulegu tímariti, »Sameiningin«, er kom út
petta ár (í Winnipeg). Annars feugu Islendingar í Dacota nú
nýjan prest ísl., Friðrik J. Bergmann, er lesið hafði guðfræði við
háskólann í Kristíaníu í Noregi; enn Hans prestur Thorgrímsen
fór frá peim til norsks safnaðar; hafa Islendingar vestra pví alls
2 presta. Blaðið »Leifur« hætti að koma út, enn í hans stað
kom út (9. sept.) nýtt blað, »Heimskringla« (íWinnipeg), gefið
út af Frímanni B. »Anderson« undir ritstjórn hans og tveggja
annara (Einars Hjörleifssonar stúdents og Eggerts Jóhanns-
sonar), enn hætti að koma út nálægt jólum sökum fjárskorts
o. fl., enda óánægja og óvild mikil gegn pví og ritstjórunum.