Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1899, Qupperneq 28

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1899, Qupperneq 28
28 8. Hinn steinninn, sem D. Bruun fann í Hjarðarholti er »Baulu- steinn« með 4 hliðarflötum, brotinn í tvent um miðjuna Þeg- brotin eru lögð saman, eru þau bæði 55 centimeter á lengd, og heíur þó brotnað af steininum til beggja enda og hann verið lengri áður. Hvort brotið um sig er c. 27‘/s centimeter á lengd. Breidd flatarins, sem letrið er á, 16 centimeter. L e t r i ð : MISH R á ð n i n g: biarni • biarna • so(n) Orðaskil hafa hjer verið táknuð með þripunkti, enn neðsti punkturinn við önnur orðaskil hefur flaskast úr. A eftir siðustu rún hefur líka flaskast úr þar sem |J hefur staðið (hjer táknað með punkti i svigum). Líklega vantar bæði framan og aftan við letrið. Rák er hjer eiginlega ekki ofan og neðan við rúnalínuna, enn rúnameistarinn hefur, áður enn hann birjaði að höggva rún- irnar, markað sjer til leiðbeiningar með oddhvössu verkfæri linu af punktum með jöfnu millibili bæði að ofan og neðan, og dreg- ið síðan rúnastafina milli þessara punkta, þannig að hver höfuð- stafur endar í punkti að ofan og neðan.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.