Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1899, Qupperneq 33
Um myndir af gripum í Forn-
gripasafninu,
Eftir
Jón Jakobsson.
Ábreiða.
(Nr. 3629.)
Ábreiða þessi er 2 ál. og 13 þuml. á lengd og 1 al. og 20
þuml. á breidd, hún er úr dökkgrænum, þéttofnum einskeftuvefn-
aði, öll útsaumuð í blómstursaum með »allegóriskum« myndum,
skrauthliðum og súlum, blöðum og blórastrum, með rauðum,
grænum, gulum, ljósbláum og bleikum litum og margskonar
millilitum; umhverfis ábreiðuna er breiður bekkur, allur útsaum-
aður með margbreytilegum blöðum og blómum, en beggja vegna
við bekkinn eru saumaðar beinar randir, frábrugðnar að lit og
eru i ytri röndina saumaðir smáteningar. Bekkurinn er breiðari
til endanna en á hliðunum; í miðjunni að neðanverðu er í hann
saumað höfuð og þar út frá til beggja hliða tvær kynjamyndir
með mannsandlitum vængjaðar; í miðjan bekkinn á efri enda á-
breiðunnar er einnig saumað andlit inni i milli blaða og blóma.
Á jöðrunum er ábreiðan brydd með ofnu bandi, hefir það slitnað
af öðrum endanum og annað verið sett i þess stað. Fyrir innan
bekkinn liggja 3 reitir þvert yfir ábreiðuna með útsaumuðum
myndum. í efsta reitnum til vinstri handar standa 2 myndir.
Önnur þeirra er Fides (Trúin) með kross i hægrihendi og kaleik
í vinstri, berhöfðuð með uppkembt hár, í skósiðum kirtli rauð-
bleikum með löngum ermum, gulum að framan og gullbelti um
sig miðja; hún hefir rauða yfirhöfn með gulu fóðri, er hún sveip-
ar um sig og upp um vinstri öxl og eru hér klæðafellingar mjög
5