Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Side 8
10
10. Isólfstunga. Reykdæla getur, í 24. kap., um ísólfstungu í
Bárðardal. Það bæjarnafn er týnt, og heíir Valdimar Asmundarson
getið þess til, í nafnaskrá Reykdælu, að það sé Litla-Tunga, og get-
ur það nú vel verið. Þó hefir mér dottið annað í hug, sem mér
virðist liggja enn beinna við. Næsti bær fyrir sunnan Litlu-Tungu
hét Ishóll, hann er nú í eyði. — Hann stóð í tungu, er myndaðist
, af Mjóadalsá að vestan, en Fiskiá og Ishólsvatni að austan. Þetta
nafn: Ishóll, sýnist mér nokkuð grunsamt. Þar er enginn is, nema
þá er vatnið liggur á vetrum, og er slíkt algengt og engin ástæða
til að kenna þenna bæ við ís fyrir það, fremur enn svo marga bæi
aðra, þar sem vötn eru. Þar á móti sýnist mér það liggja nærri,
að úr bæjarnafninu Isólfstunga gæti orðið Ishóll. Hafi t. a. m. vatnið
heitið Isólfsvatn, þá heyrist það í skjótum framburði sem Ishólsvatn
(eða Isólsvatn), og á sama hátt gat Isólfstunga orðið Isólstunga og úr
því Ishólstunga, og svo ekki annað en stytta það í: Ishóll. — Daníel
Bruun, höfuðsmaður, getur þess, í fylgiriti við Arbók Fornleifafélags-
ins 1898, að hann fann, meðal annars, miklar bæjarrústir við Fiskiá,
en nafn þess bæjar var týnt. Það mun varla fjarri að ætla, að þar
hafi Isólfstunga staðið í fyrstu, en verið fiutt undan sandfoki upp að
vatninu þangað sem Ishóll stóð síðan, og er þá líklegra, að bæjar-
nafnið hafi eigi breyzt fyr en eftir flutninginn.
11. Eyðibœir í Þegjandadal. Aðaldalur (eða Aðalreykjadalur)
skiftist að innanverðu i 3 arma. Beinasta framhald hans er Reykja-
dalur, og er hann vestast; en austast gengur Laxárdaiur suðaustur
til Mývatnssveitar. I miðið er Þegjandadaiur og er hann miklu
minstur. Hann er allur grösugur og hafa til forna verið í honum
10 bæir, sem nú eru í eyði. Allir voru þeir eign kirknanna á
Grenjaðarstað og í Múla, og allir hafa þeir verið lagðir niður til
þess, að staðirnir gæti sjálfir notað löndin. Lækur rennur eftir daln-
um, er skiftir löndum. Bæirnir fyrir austan hann voru Grenjaðar-
staðarkirkjueign og hétu þeir: 1. Hrxsar. 2. Hiísakot (líka nefndur
Hlemmiskeið). 3. Bjarnastaðir. 4. Brúar. 5. Brúagerði. 6. Hjalthús.
Nú er Grenjaðarstaður einn eftir í Þegjandadal austanmegin lækjar-
ins. Vestanmegin hans voru bæirnir Múlakirkjueign og eru þeir
nefndir: 1. Einarsstaðir. 2. Bjargakot. 3. Hólkot. 4. Vestra-Holt.
Einn bær er enn bygður vestan lækjar og er hjáleiga frá Múla.
Hann er vanalega nefndur Kraunastaðir, en sumstaðar Hraunastaðir
og enn sumstaðar Kraumastaðir. Menn hafa ekki skilið nafnið, og
er það ekki láandi. Mér hefir dottið ein skýringartilraun í hug, og
er hún sú: að bærinn hafi upphaflega heitið Krýnastaðir: haft nafn
af krýnóttu nauti. En með því að y var fyrrum borið fram sem