Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Page 10

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Page 10
12 til á túnið. önnur skriða er utanvert við það. Sjá má, að lækur heíir verið leiddur heim að bænum. 6. Tungufell var austan undir Kambfells-nibbunni: [Kambfell er múlinn, sem gengur fram milli Timburvalla og Hjaltadals]. Þar er graslendi, sjást rústir og túngirðing, um 8 dagsláttur. Lind hefir verið leidd heim á bæjarhól og þar gjört brunnhús yfir hana. b) Hjaltadalur. 7. Kambféll var vestan undir Kambfellsnibbunni og yzti bær í Hjaltadalnum austanmegin. Þar er graslendi, en þó allmiklar skrið- ur. 1818 sprakk jarðvegurinn langs eftir hliðinni fyrir ofan bæinn. Þó varð eigi af því, að skriðan félli. En með því að búist var við, að hún félli þó seinna yrði, þá fluttist fólkið þaðan vorið eftir (1819). Hefir þar ekki bygst síðan. Þó féll skriðan aldrei og greri sprungan aftur. Rústir sjást vel og tún allstórt, en víða hlaupnar á það skrið- ur. Engjar voru i mýradrögum; en þær hafa skriður eyðilagt. 8. Bjamasel þar langt inn með hlíðinni er eytt af skriðum. 9. Smáhólasel var inn undir hólaröð, sem þar liggur um þveran dalinn. 10. Bœjarstœði er kallað innar en í miðjum Hjaltadal að vestan- verðu. Það er fyrir innan hólana. Er þangað 3 tíma lefetaferð frá bænum Hjaltadal. Nafn þessa bæjar er týnt. En sögn er, að bærinn Hjaltadalur hafi verið þar til forna, en síðar verið fluttur þangað sem hann er nú: utarlega í dalnum að norðanverðu. í Bæjarstæði sáust rústir fram á 19. öld. Þá var það eitt vor, að Árni Dínusson bóndi í Hjaltadal fór með 2 dætur sínar inn á dal að tína fjalla- grös. Tjölduðu þau í rústunum í Bæjarstæði og ætiuðu að dvelja þar nokkra daga. Og til þess að geta lesið húslestur á sunnudag- inn, hafði Árni með sér húslestrarbækur og vóru þær varðveittar í keraldi. Á sunnudagsnóttina gjörði ákaft regn og tóku skriður að falla. Tóku þau það ráð, að halda heim snemma á sunnudags- morguninn, en létu tjaldið og farangurinn vera eftir í rústunum. Þá er þau komu þar er Heimastaklif heitir, féll skriða fyrir utan klifið og voru þau þar tept. Eftir nokkra stund bar þar að 'smala- mann, er Grímur hét. Hann vóð skriðuaurinn upp fyrir hné og komst til þeirra. Síðan tókst þeim Árna að koma stúlkunum yfir skriðuna og gengu síðan heim. Hestarnir voru eftir, og höfðu þau sprett af þeim og lagt reiðtýgin afsíðis. Litlu síðar kom skriða, sem stefndi á hestana; en hún klofnaði, og stóðu þeir á geiranum heilir; en reið- týgin fórust. Þá er fært þótti, fór Árni að vitja um farangur sinn i Bæjarstæði. En þá hafði skriða tekið burt rústirnar með öllu sam-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.