Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Side 11

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Side 11
13 an. Bæjarstæði er því horfið. En þó sér þar á túngarðsspotta á einum stað. Á báðum jöðrum skriðunnar höfðu myndast rastir af skógviði, sem hún hafði rifið með sér. I þeim röstum fundust ýms- ir munir úr farangri Árna; en alt var það ónýtt nema keraldið, sem bækurnar voru í: það hafði orðið léttast fyrir af öllu og kast- ast heilt út röstina. Þar fanst það með bókunum óskemdum. [Dínus, faðir Árna, bjó í Hjaltadal á undan honum. Hann var svo mikill vexti, að hann bar höfuð yfir alla menn aðra á Hálsþingi. 0g eftir því var hann sterkur, hraustur og heilsugóður. Hann komst yfir tírætt. Eg get þessa, þó að það komi ekki málinu við]. Á leiðinni milli Hjaltadals og Bæjarstæðis sjást á tveim stöðum kvíatóftir. Þar munu hafa verið sel, en að líkindum engir bæir. 11. Steinagerði hefir heitið smákot víð landamerkin milli Hjalta- dals og Snæbjarnarstaða. — Sá bær er í mynni Hjaltadals að vest- anverðu. Lítil rúst sést í Steinagerði og lítil túngirðing. En læk hefir verið veitt heim til bæjar. c) Bleiksmýrardalur. 12. Klaufarkot telst með Bleiksmýrardal, þó það væri raunar ekki í dalnum sjálfum. Bærinn Tunga, sem enn er bygður, stendur í mynni dalsins austanmegin og á land austur með múlanum, sem skilur Bleiksmýrardal og Hjaltadal. En þar hefir kotið staðið undir klauf, sem gengur upp í múlann, nál. mitt milli dalanna. Þar sjást rústir á 2 stöðum. En um aðrar af þeim er sú sögn, að þær séu eftir fjárhús, sem Sveinn ríki á Illugastöðum hafi átt þar. Sér og fyrir fjárréttinni, sem hann á að hafa rekið féð í. 13. Tungusel er í Tungulandi inn í dalnum. Ovíst er hvort þar var bær. 14. Grœnutóftir heita langt suður í dalnum. Er einnig óvíst hvort þar hefir verið annað en sel. Þar nálægt heitir Halldórs- hvammur og sést þar lítil tóft. En svo stendur á henni, að Hall- dór, sem bjó í Tungu fyrir og um 1784, gjörði sér þar viðlegukofa til kolagerðar. 15. Bleiksmýri er mjög langt suður í dalnum austanmegin. Þar er helzt nokkurt undirlendi Það er grösug mýrarspilda, en þó spilt af skriðum. Skamt utar lét maður sá, er Höskuldur hét, mæla sér út túnstæði, 12 eyrisvelli, á þeim stað, er helzt þótti óhætt fyrir skriðum. Þá voi’u þeir uppi Björn í Lundi og Kristján á Illuga- stöðum. Þeir sýndu II. fram á, að eigi væri þar byggjandi fyrir vegleysum og svo langt frá bygð. Hann hætti svo við það.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.