Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Side 27
29
an stein, sem líka hafði bolla í miðju; í milli bollanna, sem þannig
hvolfdu saman, hafi leikið steinkúla, er snúið hafi verið með ási, er
úr henni gekk upp um opið og efri bollann og hafði sveif á efri
enda, líkt og kaffikvörn. Hafi svo korn verið látið í efri bollann,
gengið þaðan niður með ásnum, er honum var snúið, ofan í hina
samanhvolfdu bollana og knúsast í þeim af steinkúlunni. Eigi get
eg gert mér nákvæmari hugmynd um þetta, og eigi tiltekið, hvort
þetta skyldi heldur vera mölunarvél eða þreskivél, þætti jafnvel
geta verið, að það hefði verið íslenzk kaffikvörn, ef þetta brot hefði
ekki fundist svo djúpt í jörðu. Ekki legg eg áherzlu á þessa tilgátu.
Friðfinnur gefur brotið Foi’ngripasafninu.
2. Fornleifafundur d Bessastöðum á Hrútafjarðarhálsi.
Björn bóndi Jónsson á Bessastöðum á Hrútafjarðarhálsi ætlaði
í vor að slétta út liólbala, sem þar er fyrir austan bæinn. Þá kom
hann niður á steinaröð, sem myndaði steinþró, afianga frá suðri til
norðurs. Þar voru leifar af brendum viði og í suðurendanum fanst
hauskúpubrot. Vottur sást til fleiri beina. Eigi vildi bóndi eyði-
leggja þenna forna legstað. Setti hann því alt í samt lag aftur.
3. Fornleifafundur í Tjarnarhoti.
Bærinn Tjarnarkot á Hrútafjarðarhálsi va.r bygður nálægt byrjun
19. aldar, og vissu menn menn ekki til að þar hefði bygð verið
nokkurn tíma áður. En vorið 1904 var þar reist timburhús og graf-
ið fyrir kjallara. Þá urðu fyrir, suðaustan til í gröfinni, eldhússhlóð,
og voru þau nál. 2 ál. undir jafnsléttu. Og í norðausturhorni kjall-
aragrafarinnar fanst taisvert af smiðjugjalli. Fyrir vestan bæinn
var sléttaður út hólbali. Svo sem 11/2 al. ofan í honum varð fyrir
fjóstóft fyrir 2 kýr og lítiil kálfsbás út úr veggnum. öðrumegin við
fjóstóftina var kindakró, og lítt fúin taðskán á gólfinu. I báðum
tóftunum var á gólfinu 'fúaspýtnarusl, er vakti grun um, að þekj-
urnar hefði fallið ofan í tóftirnar og aldrei verið teknar burt þaðan.
Þykir líklegast, að sá bær, sem þessar leifar voru eftir af, hafi eyði-
lagst í Svartadauða og eigi bygst aftur fyr en á 19. öld, og þá verið
gleymdur fyrir löngu.
4. Fornleifafundur í Fljótstungu.
Vorið 1905 var grafið fyrir kjallara í Fljótstungu í Hvítársíðu.
A svo sem 2 ál. dýpt undir yfirborði varð fyrir hellulagt gólf. Hell-
urnar voru smáar og þunnar, úr ljósleitri blágrýtistegund; en höfðu
mjólkurhvítan lit á yfirborði, sem náði vel 1 línu inn í steinninn.