Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Síða 36
38
Nr. 4. Guðmunclur Sugurðsson. f 1674.
Þessi steinn er 147 sm. að lengd, 55 sm. að breidd og 14 sm.
að þykt. Stafirnir 4—5 sm. að hæð. Á hvorum enda steinsins fyrir
miðju er engilsmynd með úthreiddum vængjum, og sjölaufarósir sín
hvoru megin við hvora mynd. Bekkur er umhverfis letrið og mynd-
irnar. í 13. línu er bil á milli sjálfrar grafskriftarinnar og ritning-
argreinarinnar, er þá kemur á eftir. í þessu bili eru hringir, sem
grípa hvor innan í annan, eða keðjubrot. Til orðaðskilnaðar er tví-
depill sumstaðar, en sumstaðar er ekkert bil á milli orðanna. Tví-
depill er á 8 stöðum: í 4 fyrstu línunum, í 6. 1., fyrir framan og
aftan 5 í 11. 1. og fyrir aftan skammsöfunina DECEMB í 12. 1. —
Letrið upphafsstafir. í 15. 1. eru té-in bundin saman. Hljóð-
táknanir og stafamerking svo sem á hinum íslenzku steinunum:
HIER:VNDERH
VILER:GREPTT
RADÆRLEGTG
VDSBARN:GVD
MVNDVRSVGV
RDSSON:LEI
STISTHIEDAN
FIRERCHRISTI
LEGTANDLAT
A75ARESINS
ALLDVRS:5:D
ECEMB:ANNO
16740000ÞEIR
ENDVRKEIPTV
DROTTINSMV
NVAPTVRSNVA
OGTILSIONKOMA
GREPTTRAD (2.—3. 1.) er ritað með 2 té-um, en venjul. er það
ritað með 1 té-i._Til samanburðar við þennan rithátt má benda á
rithættina -GEFN- á st. nr. 1 og SAMTT á st. nr. 2 (sjá Árb. 1904,
bls. 35 og 39). Þessi ritháttur kemur af þvi að p- og t-hljóðið er
»hart« og hvorttveggja hljóðið borið skýrt fram; nú segja menn ft
eða öllu heldur ffd. — Viðv. ERLEGT (3. 1.) sjá ERLEGVR á st. nr.
2. — SVGVRDSSON er hér ritað fyrir Sigurðsson og virðist einskonar
tillíking valda þessu; því að ekki er þetta af vangá einni; á legst.
nr. 6 kemur hið sama fyrir og sömul. á legst. á Gufunesi (sjá Árb.
1897, bls. 40). — ALLDVRS sbr. HOLLDSINS á st. nr. 1 (Árb. 1904,
bls. 35. — DECEMB er skammstöfun fyrir Decembris, ef. eint, eftir