Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Qupperneq 37
latneskri beygingu, sem stjórnast af 5 (fimta), sbr. AVGVSTI á st.
nr. 1 og MARCI á st. nr. 2. — Ritningargreinin neðst á steininum
er úr Esajasi 51,u (sbr. 35,10). — Grafletrið hljóðar þá þannig:
»Hjer under Tivíler greptraö erlegt guðsbarn, Guðmundur Sugurðs-
807i. Leistist hjeðan firer christilegt andlát á 75. áre síns aldurs, 5.
Decembfris] anno 1674.
Þeir endurkeiptu drottins munu aptur snúa og til Síon koma«.
Nr. 5. Tliorstemis Biornonis filius. f 1675.
(Þorsteinn Björnsson).
Þessi Þorsteinn Björnsson var prestur á Utskálum 1638—1660.
Munu margir kannast við hann af skáldsögunni »Brynjólfur Sveins-
son biskup* eftir Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm. Hann er nokkuð
við söguna riðinn, og á bls. 301 er dálítil athugagrein um hann.
Þar er útlegging, mjög ónákvæm, af grafskrift þessari.
Steinn þessi er sama efnis og allir hinir, grágrýti (hraungrýti,
dolerit) af Garðaholti. Hann er boginn fyrir báða enda. Lengd
180 sm. í miðju og 174 sm. til hliðanna, breidd 68 sm. og þykt um
15 sm. Stafhæðin 4x/2—6Va sm. Fyrir ofan letrið er engilsmynd, andlit
og stórir vængir. Neðanundir eru lykkjudrættir (upphleyptir). Letrið
er vel gert og steinninn fallegur. Til þess að aðgreina orð o. fl. er
hafður 1 depill. Letrið er venjulegir latínuleturs-upphafsstafir;
ö-hljóðið er i BI0RNONIS táknað með 0, sem tekið er úr íslenzku
stafrofi; u- og v-hljóð eru táknuð með V. Grafletrið er á latínu og
hljóðar þannig:
D.O.M.S.
THORSTENVS.IACET.H
IC.BI0RNONIS.FILIVS.
ILLE.
FLOS.PATRIÆ.ANTIQVA
.MAGNVS.IN.HISTO
RIA.
ANTIQVÆ.HISTORIÆ.V
OS.HEV.LVGETE.LEPO
RES.
VESTRO.MORTVVS.
EST.ILLE.VIR.EXI
TIO
VIXIT.ANNOS.LXIII.
MORITVR.ANNO. oo .DC
.LXXV.REQVIESCAT
.IN.PACE.
P.C.M.O.D.