Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Síða 40

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Síða 40
42 temporibus et diversis seculis a mundi principio per 5852 annos usque ad annum salutis 1671 retrocesserunt« (um sólstöður). Síðasta kvæðið (7.) er »Memoria judicis avari et iniqui« (Minning ágjarns og óréttláts dómara) og undir því er svo fangamark séra Þorsteins. Það var árið 1660 að séra Þorsteinn varð að fara frá Utskálum. Flutti hann þá þegar að Setbergi fyrir ofan Hafnarfjörð og lifði þar þau 15 ár, er eftir voru æfinnar. Af innganginum að kvæðum hans má sjá, að hann hefir reynt að stytta sér »hið leiða líf« (»pertæsam vitam«) með því að fást við að yrkja, og eftir því sem segir í Árb. Espólíns1) hefir hann látið »lesa sér til skemtunar síðan, er voru i mörg hindurvitni«. Þorsteinn hefir fengið þann orðróm á sig, að hann væri göldróttur og bendir það helzt á, að hann hafi verið víða heima; enda bera kvæði hans vott um margs konar lærdóm hans og hefir hann sjálfsagt verið í Skálholtsskóla áður en hann vígðist að Útskálum. í grafskrift sinni getur hann einskis annars um sig, en að hann hafi verið vel að sér í fornaldarsögu íslands og hefir hann án efa getað sagt það með sanni, eftir þvi sem þá gerð- ist. Fróðleik séra Þorsteins má nokkuð ráða af því, að hann átti sögubók eina mjög stóra, í arkarbroti. Á hana hafði hann látið skrifa ýmsar sögur, nefnil. ágrip af Sturlunga sögu, 17 íslendinga- sögur, Hungurvöku og 5 biskupasögur aðrar, um 15 riddarasögur o. fl. Þetta mikla handrit fekk Sigurður Björnsson lögmaður eftir séra Þorstein. Síðan komst Árni Magnússon yfir það og skifti því sund- ur í margar bækur eftir efni og eru þær nú í safni hans2). Á aðra lét séra Þorsteinn Pál Sveinsson skrifara sinn rita Völsunga sögu, Ragnars sögu loðbrókar og Krákumál, og er sú bók nú nr. 2 í ark- arbroti i Árnasafni. Nr. 6. Vilborg Sugurðardóttir. f 1680. Steinn þessi er burstmyndaður að ofan, 99 sm. að lengd um miðju, 81 sm. á aðra lilið, en ekki nema 74 sm. á hina, því að kvarnast hefir af; 50 sm. að breidd, um 13 sm. að þykt. Stafirnir 3Va—4Va sm. að hæð. Á burstinni er engilsmynd með stórum út- breiddum vængjum; strik er utan um. Einnig er einfalt strik utan um letrið og neðst á steininum; fyrir utan strikið eru 2 litlir hringir. *) VII. D. bls. 24—25. er sagt „frá Þorsteini presti“. ’) Það eru handritin 121, 158, 181 a—b og k—1 og 204, öll i arkarbroti, 326 c og 588 q (afskrift), bæði í 4-bl. broti. Sbr. handritaskrá safnsins.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.