Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Page 52
S k ý r s 1 a,
I. Ársfundur félagsins 1906.
Ársfundur félagsins var haldinn mánudaginn 17. des. Eftir að
formaður hafði minst tveggja látinna félagsmanna, Hallgríms Mel-
steðs bókavarðar og Ólafs Guðmundssonar læknis, lagði hann fram
reikning félagsins fyrir 1905 og hafa endurskoðendur ekkert fundið
við hann að athuga. Því næst skýrði hann frá rannsóknarferðum
Brynjúlfs Jónssonar næstliðið sumar út í Vestmanneyjar og upp á
Þórsmörk. Hann mintist og á prentun registursins við árbækur fé-
lagsins 1880—1904 og árbókarinnar fyrir 1906. Eptir nokkrar um-
ræður um rannsóknir fornleifa hér á landi bar formaður upp þá
tillögu félagsstjórnarinnar, að gera Brynjúlf Jónsson að heiðursfélaga
i þakklætisskyni fyrir margra ára starf hans í þjónustu félagsins,
og var það samþykt i einu hljóði.
II. Reikningur hins íslenzka Fornleifafélags 1905.
Tek j ur:
1. í sjóði frá fyrra ári........................, . kr. 1071 45
2. Tillög félagsmanna og seldar Árbækur..................— 172 55
3. Styrkur frá Forngripas. til að spyrja upp forngripi — 100 00
4. Styrkur úr landssjóði.............— 400 00
5. Selt verkfæri frá Hörgsdalsgrefti....................— 1 50
6. Vextir á árinu:
a. af bankavaxtabréfi................kr. 22 50
b. af innst. í sparisjóði............— 1 10
-------------- — 23 68
7. Til jafnaðar mót gjaldlið 4 .........................— 300 00
Samt. kr. 2069 18