Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Page 6
8
það voru þá kinir fróðustu. Svo frá þeirri hlið sé eg enga ástæðu
til að meta frásögn yngra handritisins minna en hina. Og hvað
það snertir, að eigi sjást leifar af túngarði í Herjólfsdal, þá getur
það bent á, að þar hafi bær staðið skannna hríð. Munnmælin gefa
það líka í skyn, að svo hafi verið. Þau láta Herjólf sjálfan verða
undir skriðunni, og var það hefnd fyrir harðýðgi hans: að hann
vildi selja mönnum vatnið úr lindinni. Þessi sögn, um orsökina til
skriðuhlaupsins, hefir að likindum bæzt við siðar; ekki hefir hún
náð í Landnámu.
Landn. tiltekur að nokkuru leyti staðinn, þar sem bærinn var
í Herjólfsdal: »fur innan Ægisdyr«. Verði það örnefni ákveðið, þá
er það að minsta kosti góður stuðningur við sögnina. Og svo vill
vel til, að varla sýnist geta verið nema um einn stað að ræða.
Það er Kaplagjóta, sem áður er nefnd. Sú skora er sérstaklega lög-
uð til að geta heitið dyr fram til sjávar. Og hún er að eins stutt-
um spöl fyrir utan Fjósaklett. Hafi bærinn staðið þar, sem skriðan
er, og hafi Kaplagjóta fyrrurn heitið Ægisdyr, þá stendur það eink-
ar vel heima.
III. Ormsstaðir.
Aftur segir Landn. að Ormr auðgi (áðr: ánauðgi) hafi búið »á
Ormsstöðum við Hamar niðri«. Nafnið Ormsstaðir er nú týnt. En
orðið »niðri« er án efa miðað við Herjólfsdal: niður þaðan, nær sjó.
Herjólfsdalur er hugsaður sem sveitabœr, en Ormsstaðir við Hamar
niðri sem sjóbœr. Víða á Vestmannaeyjum eru hamrar með sjó, en
bæði er þar víðast óbyggilegt, og svo er þeim hömrum eigi sérstak-
lega gefið nafnið: Hamar, nema Ofanleitishamri, — en þar er óbyggi-
legt vegna vatnsleysis, þó ekki væri annað, — og Nausthamri við
höfnina. Hann er nú lítill, enda heflr sjórinn smá-brotið af honum.
Gamalt fólk á Vestmannaeyjum man eftir, að hann náði upp að
landklöppum og var allur jafnhár; en nú er þar skarð í milli. Og
óefað hefir hann verið jafnhár fram á brún fyrrum, annars hefði
hann ekki verið kallaður hamar. En nú er stallur mikill brotinn í
hann að framanverðu. Bergið í honum er hraun (Lava) og vinnur
sjórinn það auðveldlega. Ekkert er einkennilegt við hann og mun
aldrei hafa verið, utan það, að hann er hjá lendingunni og menn
hafa gjört naust hjá honum. Þar af hefir hann íengið nafnið: