Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Blaðsíða 57
Skýrsla.
I. Aðalfundur félagsins 1907.
Aðalfundur félagsins var haldinn föstudaginn 22. nóvember.
Formaður mintist látins félagsmanns, Jóns konsúls Vídalíns, og gat
þess að hið merkilega safn hans af íslenzkum forngripum væri nú
alt komið til Forngripasafnsins. Því næst lagði hann fram endur-
skoðaðan ársreikning félagsins fyrir 1906, og hafði ekkert verið við
hann að athuga. Hann gat þess að þar sem sjóður félagsins hefði
minkað um rúmar 300 kr. á árinu, þá stafaði það frá óvenjulegum
útgjöldum við registur yfir árbók félagsins.
Því næst skýrði formaður frá ferðum Brynjólfs Jónssonar í
þjónustu félagsins næstliðið sumar um Mýrar og Borgarfjörð.
Þessu næst mintist formaður á lög þau, er samþykt voru á síð-
asta alþingi um verndun fornmenja, er hafa svo mikla þýðingu fyr-
ir málefni það, er frá upphafi hefir verið aðalmarkmið Fornleifafé-
lagsins að styðja, og mundu lög þessi að nokkru leyti hafa í för
með sér breytingu á starfsviði félagsins.
Eftir nokkrar umræður var svo gengið til kosninga á embætt-
ismönnum félagsins.
II. Stjórn félagsins.
Formaður: Eiríkur Briem, prestaskólakennari.
Varaformaður: B. M. Olsen, dr., prófessor.
F u 111 r ú a r: B. M. Olsen, dr., prófessor.
Hannes Þorsteinsson, ritstjóri.
Jón Þorkelsson, dr., landsskjalavörður.
Pálmi Pálsson, kennari.
Stgr. Thorsteinsson, rektor.
Þórh. Bjarnarson, prófessor.
Skrifari; Pálmi Pálsson, kennari,
8*