Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Qupperneq 8
10
Unarhús og mörg önnur hús á Kornhóls-lóðinni. Gerum nú ráð fyr-
ir, að jörðin hafi fyrst eftir fiutninginn haldið áfram að heita Orms-
staðir, að einhver hinna fyrstu kaupmanna á eyjunum hafi jafn-
framt búið á jörðinni og átt hana, að hann hafi reist sér íbúðarhús
af viði, eftir því sem hann hafði séð erlendis og að hann hafi þá
lagt bæinn niður og gjört rúst hans að kornakri. Út af því hefir
þá hóllinn fengið nafnið Kornhóll, en hið upphaflega bæjarnafn týnzt.
Löngu seinna, þá er dofna tók yfir akuryrkjunni, hefir aftur verið
reistur bær á hólnum og haldið Kornhóls- nafninu. Þeim bæ hefir
þá aftur 'verið tileinkað hið fyrra land, þó kaupstaðurinn nú hefði
það til notkunar. Bærinn hefir ekki verið aðskilinn frá kaupstaðn-
um og einn hefir verið eigandinn, svo það gerði ekkert til, þó lóð-
in væri kend við Kornhól, ef til vill vegna fornrar endurminningar.
Þó hefir bygð á Kornhól lagst niður aftur, og hefir það vei'ið fyrir
eða um 1627, því þar í hólnum, án efa í rústum bæjarins, lét kaup-
maður reisa Skansinn þá er Tyrkja var von. Skansinn hefir verið
upphleyptur ferhyrningur, um 5 fðm. á hvern veg og sterkir garð-
ar um kring. Uppgangur vestanmegin. Garðarnir á norður og
og austurhliðinni standa enn — með viðhaldi auð vitað, — en suður-
garðurinn hefir verið tekinn burtu. Svo stóð á því, að á einum
tíma höfðu verzlunarhús verið sett á Skansinn og þá var garðinum
rýmt frá og alt innan garðs liklega lækkað nokkuð. Þó er enn til
muna uppgengt í Skansinn. Þó tilgátunum um Ormsstaði hér að
framan kunni að skakka meira eða minna, þá mun þó mega telja
víst, að elzti bærinn í kaupstaðnuin hafi verið settur þar, sem siðar
hét Kornhóll og nú heitir Skansinn. Brátt hafa svo fleiri bæir bæzt
við. Einna elzt bæjanöfn virðast vei'a: Búastaðir, 0ddsstaðir, Víl-
borgarstaðir, Lönd og Kirkjubœr. Fyrir ofan Leiti mun líka allgöm-
ul bygð. Hefir elzta bæjarnafn þar: Ofanleiti, myndast úr orðunum
»fyrir ofan Leiti«.
IV. Kirkjan k Vestmannaeyjum.
Svo segir í Kristnisögu, k. 11: »Þeir (Gissur og Hjalti) tóku
þann sama dag Vestmannaeyjar, og lögðu skip sitt við Hörgaeyri;
þar báru þeir föt sín á land, ok kirkjuvið þann, er Ólafr konungr
hafði látið höggva ok mælti svá fyrir, at kirkjuna skyldi þar reisa,
sem þeir skyti bryggjum á land. Áðr kirkjan var reist, var lutað