Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Qupperneq 16
18
að er, að landið gat ekki heitið Almenningur meðan bær var þar.
Nafn bæjarins er týnt. En ekki sýnist mér vafamál, að hver bær
hafi átt sitt nafn í Þórsmörk, eins og annarstaðar, þó Njála segi um
þá: »er i Mörk hétu allir«. Það mun vera svo að skilja, að jafn-
an, er einhver þeirra var nefndur, heíir verið bætt við til skýring-
ar: í MörJc (t. d. Þuríðarstaðir í Mörk). Og stundum, þegar svo stóð
á ræðu, hafa þeir verið teknir allir undir eitt, og nefndir »i Mörk«
líkt og vér segjum nú »í Mörkinni«. Er hugsanlegt að ritari Njálu
hafi aldrei heyrt þá nefnda öðruvísi en svo, og ekki þekkt hin ein-
stöku nöfn bæjanna. 0g sé þetta rétt til getið, þá bendir það til
þess, að hann hafi ekki átt heima i Rangárþingi. En líka getur
verið, að hann hafi slept að nefna liin einstöku bæjarnöfn, álitið
hitt nægja og notað'það til að vera stuttorður. Það gerir hann sér
oft far um. Sigurður Vigfússon ætlar, að Kápu-bærinn hafi verið
miðbœrinn á Þórsmörk, en mér þykir líklegra að það hafi verið
innsti bærinn. Innar er naurnast líklegt að bygð liafi verið, eftir
landslagi og veðurlagi að dæma. Þuríðarstaðir (sjá Arb. ’94, bls. 22),
hafa án efa verið fremsti (syðsti) bærinn. En hvar var þá miðbær-
inn? Um það er eg íyrir mitt leyti varla í vafa. Stuttri bæjarleið
fyrir innan Þuriðarstaði er Húsadalur. Þar valdi Sæmundur ög-
mundsson sér bæjarstæði, er hann vildi búa á Þórsmörk, (sjá sama
stað), og mun flestum sýnast, að hann hafi ekki getað betur valið.
Það er óneitanlega byggilegasti staðurinn á allri Mörkinni. Svo mun
líka hafa verið i fornöld. Kápu-bæjarstæðið hefir vissulega verið á-
litlegt líka meðan landið var óblásið. En þó fell eg nú frá þeirri
tilgátu að þar hafi Ásbjörn Reyrketilsson sett bæ sinn, tel eg enn
líklegra, að hann hafi sett hann í Húsadal. Ekki er von að forn
rúst sjáist þar, Sæmundur mun hafa sett sinn bæ i hana og þannig
eyðilagt hana. Bær Sæmundar hefir staðið á fegursta staðnum í
dalnum, og ekkert er líklegra en að Ásbjörn hafi bygt á þeim sama
stað. Lækur hefur runnið eftir dalnum og fram hjá bænum. Nú
er hann þornaður, nema í leysingum, því uppblástur gengur ofan í
dalbotninn og uppsprettan er sandkafin. Nafnið »Húsadalur« mun að
vísu eigi vera eldra, en eftir bygð Sæmundar. Nafn hins forna bæ-
jar hefir ef til vill aldrei verið annað en »Þórsmörk«. Að minsta
kosti hefir svo verið meðan ekki voru fieiri bæir á Mörkinni. Nú
vil ég líka, — til þess að koma ekki í bága við Landn., — falla
frá þeirri tilgátu, sem enda var lausleg, að Steinfínnsstaðir liafi ver-
ið fyrir sunnan Krossá og nafnið hafi breyst í Steinsholt. Set ég
þá tilgátu í staðinn, að Kápu-bærinn sé Steinfinnsstaðir, því sam-
kvæmt Landnámu námu báðir bræðurnir land »fyrir ofan Ki’ossá«.