Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Side 17
19
Nú var það aðeins Ásbjörn, sem helgaði landnám sitt Þór. Sé þetta
rétt til getið, þá hefir Þórsmörk aldrei náð nema inn að Þröngá,
eins og enn er talið. En Steinfinnur hcfir þá numið land þaðan
inn að Ljósá. En þó að Njála aðgreini ekki þennan bæ frá Þórs-
mörk, og telji þar þrjá bæi, þó ekki væru nema tveir þeirra í Mörk-
inni sjálfri, þá er það lítilvæg ónákvæmni af manni, sem þar hefir
víst aldrei komið. Annars ræður hver sinni meiningu um þessar
tilgátur mínar.
Þá er ég skoðaði Kápu-rústina 1893, kom ég ekki í Þuríðarstaði
mér var sagt, að þar sæist engin rúst. Þá var þar þó talsvert
blásið, en meira hefir blásið síðan, því nú er þar örfoka ofan að
móhellu. Er vert að geta þess, að hvar sem örfoka er á Þórsmörk,
verður eftir þunt móhellulag, og er ýmist að það liggur flatt eða
því hallar meira eða minna. Fer það eftir því, hvort land er flatt
eða því hallar á þeim eða þeim. staðnum. En svo þunt er þetta
móhellulag, að sumstaðar rekur hestur fótinn niður úr því. Undir
því er þykt sandlag ofan á þursabergi. Ekki verður nú komist á
hesti til Þuríðarstaða nema á einurn stað. Verður að fara af Kross-
ár-aurnum upp úr Engidal. eg svo vestur yfir hrygg ranans og ofan
að Þuríðarstöðum um svo snarbratta brekku, að það má illfært heita.
Ekki er þar um bæjarstæði að ræða nema á einum stað. Þar geng-
ur ávið-flatt nef fram að fljótinu og er að eins sjálft neflð halla lítið
þar er líka bæjarrústin, grjótið úr henni liggur í dreif ofan á mó-
hellunni. Ekki er það meira en svo, að að eins heflr það verið nóg
í undirstöður veggjanna. Og þó hallinn sé ekki mikill, er hann
nógur til þess, að meðan þar var mold og aurbleyta gat myndast í
leysingum, þá hefir hún sigið undan hallanum og fært steinaraðirnar
úr lagi, svo ekki er lengur hægt að ákveða húsaskipun, Þó var
þar enn á einum stað þráðbein steinaröð nál. 10 faðm. löng. Það
er án efa undirstaðan undir afturvegg aðal-bæjarhússins, sem víst
hefir verið skift í fleiri herbergi. Af undirstöðu framveggjarins stóðu
steinar eftir hér og hvar og mynduðu beina röð samhliða hinni.
Hafði breidd hússins að innanverðu verið hér um bil 4 al. Annars
lá grjótið í óreglulegri breiðu, og var hún nál. 22 faðm. á lengd frá
norðri til suðurs. Breiddina var ekki hægt að ákveða, hún var svo
ójöfn. Til norðvesturs frá breiðunni sáust ieifar af sérstöku húsi er
virtist hafa verið nál. 8 faðma langt og llþ faðmbreytt. Austanvið
rústina er djúp laut eða dálítið gil, hálffult af foksandi; það liggur
fram í bæjarlækinn. Fyrir austan það lágu nokkrir steinar á mó-
hellunni í miklum halla. Það voru án efa leifar af húsi og hafa
fleiri steinar víst verið þar áður en hafa færst ofan í gilið og sand-
3*