Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Page 19
21
þó mjúkt og auðunnið. Er sú steintegund eigi sjaldgæf á Þórsmörk,
sjást víða molar úr henni i framburði giljanna. Kerið var utan við
rústina og virtist hafa staðið úti. Má vera að það hafi verið þvotta-
stampur. í rústinni fundum við leifar af ýmsum smáhlutum, nokk-
ur brýnisbrot, krók úr fötukilp, odd af ljáspík og þyrsklingsöngul
auk ýmíssa smábrota af járni, sem ekki verður séð úr hverju eru,
og fáeina smásteina, sem bornir hafa verið til bæjar frá fljótinu.
Þyrsklingsöngullinn er vottur þess, að þaðan hefir maður fai’ið í út-
ver til róðra; hann heflr haft öngulinn heim með sér frá sjó, eftir
að hann hafði notað hann þar. Til heimanotkunar á Þórsmörk gat
öngullinn eigi verið ætlaður. Loks skal þess getið, að sunnan und-
ir nefinu, sem rústin er á, rennur lækjarsitra í fljótið, og hefir þar
verið bæjarlækur og vatnsból Þuríðarstaða.
Sé það nú rétt til getið, að bær Ásbjarnar Reyrketilssonar hafi
verið þar sem nú heitir Húsadalur og hafi Ásbjörn búið þar til elli
þá er það eðlileg tilgáta, að Ketill son hans hafi reist bú að föður
sínum lifanda og því gjört sér annan bæ í landnámi hans. Og þar
eð kona Ketils var Þuríður Gollnisdóttir, þá liggur beint við, að bær
Ketils hafi verið kendur við nafn hennar og það hafi verið Þuríð-
arstaðir. Sérstaklega væri það líklegt, ef hún hefði lifað mann sinn
og búið þar eftir hann. örskamt má heita milli Húsadals og Þur-
íðarstaða. Þó verður það nú ekki komist með hest, nema fljótið sé
svo lítið að ríða megi undir hömrum. En þar hygg ég að áður hafi
verið undirlendi, sem að framan er tekið fram.
Eg sagði hér að framan, að ég væri fallinn frá þeirri lauslegu
tilgátu, að nafnið Steinfinnsstaðir hefði breyst í Steinsholt. Nú set
ég fram aðra tilgátu viðvíkjandi landinu sem Jörundur goði »fóreldi
og lagði til hofs«. Hún er sú, að með orðunum »milli Krossár og
Jöldusteins« sé átt við alla landspilduna milli Krossár og Jökulsár.
Jökulsá er milli Steinholts og Langaness og hefir að líkindum til
forna runnið í fljótið eigi alllangt frá .Jöldusteini, ef til vill runnið
áður saman víð Steinsholtsá niðri á undirlendinu. Þetta landriám
Jörundar hefði þá náð yfir Goðaland, Staklcholt og Steinsholt. Þá
hefði Hoftorfa á Steinsholti haft nafn af hofi Jörundar — þó það
stæði þar ekki — og Steinsholt haft nafn af hínum stóra steini, sem
stendur i Hoftorfunni, en »Bjórinn« væri láglendis-spildan sem liggur
ofan að fljótinu á þessu svæði. Hefir þar þá verið graslendi og hefir
það verið sambandsliður milli Langaness og láglendisgeirans vestan
fram með Þórsmörk. Hefir þá legið vegur eftir öllu þvi láglendi
endilöngu. Kemur þetta alt vel heim bæði við Landn. og Njálu.
En af þessari tilgátu leiðir, að hvergi verður hægt að hugsa sér