Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Síða 52
54
3. k a f 1 i.
Um forngripi.
12. gr.
Hver sá, er finnur forngrip í jörðu eða á, er skyldur til að
skýra lögreglustjóra þegar í stað nákvæmlega frá fundinum. Jafn-
framt skal hann afhenda lögreglustjóra það, sem fundist hefir, nema
hætt sé við, að það skemmist í fiutningnum, þá skal hann varð-
veita það á þann hátt, sem hann best getur, uns lögreglustjóri ráð-
stafar því. Ef líkur eru til, að fleiri forngripir þeir, er mikilsverðir
eru, muni dyljast á fundarstaðnum, skal finnandi við engu hagga,
en skýra þegar lögreglustjóra frá. Fundarstað skal finnandi jafnan
greina skilmerkilega.
Ef forngripur finst við mannvirki þau eða störf, sem fram-
kvæmd eru samkvæmt 10. grein, skal finnandi afhenda hann verk-
stjóra eða því stjórnarvaidi, sem hlut á að máli, og skal viðtakandi
gefa lögreglustjóra nákvæma skýrslu um fundinn og fari með, sem
að traman er greint. Nú finst forngripur við rannsókn þá eða að-
gjörð, sem getur í 11. grein, og skal þá sá, er rannsókninni eða
aðgjörðinni stýrir, annast um hlutinn og sjá um, að hann komist til
Forngripasafns Islands og að ágrip af skýrslu um fundinn sé birt,
sem síðar segir (sbr. 14. grein).
Skylt er lögreglustjóra að gefa skriflega viðurkenningu fyrir
móttöku forngrips, ef þess er óskað.
13. gr.
Jafnskjótt sem lögreglustjóri hefir fengið skýrslu um fund forn-
grips, skal hann skýra þeim manui eða mönnum frá, sem land eiga
undlr, þar sem forngripur fanst, og jafnframt senda stjórnarráðinu
skýrsluna með þeim viðaukum frá sjálfum sér, sem honum virðast
nauðsynlegir. Enn fremur sendir hann þá forngripi, sem honum
hafa verið afhentir, til stjórnarráðsins, nema hætt sé við, að þeir
skemmist í flutningi, þá skal lögreglustjóri geyma gripina, uns
stjórnarráðið ráðstafar þeim.
Ef lögreglustjóra virðast líkur til, að fleiri forngripir muni dylj-
ast þar, sem forngripur fanst, skal hann geta þess í skýrslu sinni
til stjórnarráðsins og sjá um, að engu verði rótað á fundarstaðnum,
þangað til rannsókn getur fram farið.
14. gr.
Agrip af þeim skýrslum um fundna forngripi, sem stjórnarráðið
fær frá lögreglustjóra eða þeim manni, er rannsókn eða aðgjörð