Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Síða 53
55
stýrir samkvæmt 11. grein (sbr 13. og 12. grein), svo framarlega
sem likur eru til, að nokkur geti sannað eignarétt sinn að forngrip-
unum, skal birta þrisvar í því blaði, er ílytur stjórnarvaldaauglýs-
ingar, með áskorun til eiganda, ef nokkur sé, að gefa sig fram.
Alla þá forngripi, sem nefndir eru í fundarskýrslu, skal forn-
menjavörður taka á sérstaka skrá, og skulu þeir geymdir á sérstök-
um stað i Forngripasafni Islands, uns útséð er um, hvort eigandi
finst (sbr. 15. og 16. greín).
15. gr.
Nú gefur eigandi sig fram, áður en 4 mánuðir eru liðnir frá
síðustu lögbirtingu fundins forngrips, og sannar eignarrétt sinn, og
skal þá afhenda eiganda hann gegn því, að hann greiði lögbirting-
arkostnað, en jafnframt skal fornmenjavörður setja hlutinn á forn-
gripaskrá þá, er getur i 19. grein, ef honum þykir hann þess verð-
ur, og leggst þá á hann sú kvöð, er þeirri skrásetning er samfara.
16. gr.
Nú líða svo 4 máuuðir, frá síðustu lögbirtingu fundins forngrips,
að enginn eigandi leiðir sig að honum, og verður hann þá eign
landssjóðs að þriðjungi, flnnanda að þriðjungi, og að þriðjungi eign
þess, sem land á undir, þar sem hluturinn fannst.
Ef gripurinn hefir fundist við framkvæmd á vegagjörðum eða
öðrum mannvirkjum, samkvæmt 10 gr., eða í almenningum, afrétt-
arlöndum, eða á heiðum uppi, sem ekki teljast til heimalanda, telst
landsjóður sem landeigandi, og sömuleiðis ef hann heflr fundist á
kirkjujörðum, eða ef hreppsfélag, sýslufélag eða bæjarfélag á land
undir; eignast landssjóður þá forngripinn að tveim þriðjungum, en
finnandi að þriðjungi.
Ef forngripur hefir fundist við rannsókn þá eða aðgjörð, er ræð-
ir um í 11. grein, telst landssjóður sem finnandi og eigandi gripsins
að tveim þriðjnngum, en landeigandi að þriðjungi, nema um þá
hluti sé að ræða, sem eru óskift eign landsins samkvæmt 7. gr.
Ef fleiri eru flnnendur en einn, skiftist eignarrétturinn að finn-
anda þriðjungi jafnt milli þeirra. Ef landeigendur eru fleiri en einn
skiftist eignarrétturinn að landeiganda þriðjungi milli þeirra í réttri
tiltölu við eign hvers eins í landinu.
17. gr.
Ef finnandi leynir fundi forngrips og skýrir ekki lögreglustjóra
frá honum (sbr. 12. gr.), eða spillir honum eða lógar af ásettu ráði,