Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 4
4
þess tilvalinn. Þegar þeir Kári og Hjalti Skeggjason komu ofan úr
Þjórsárdal, með lið það er þar hafði safnast, »riðu þeir Kári nú við
þetta lið til móts við Mörð Valgarðsson, ok fundust þeir við Holts-
vað. Var Mörðr þar fyrir með allmiklu liði. Þá skiftu þeir leitinni;
riðu sumir hit fremra, austur til Seljalandsmúla, en sumir upp til
Fljótshlíðar, en sumir hit efra, um Þríhyrningshálsa ok svá ofan í
Goðaland«. Hafi Holtsvað verið sem nú hefir verið sagt og ég ætla,
er lýsingin svo meistaraleg, að betur getur ekki orðið, og ekki unnt
að hyggja annað en að einmitt þessi staður hafi staðið söguritaranum
fyrir hugskotssjónum. Hér er réttilega sagt »upp til Fljótshlíðar«, um
för héðan; hér stendur ekki »austur til Fljótshlíðar«, eins og það hefði
átt að vera ella, hefði Holtsvað verið á Fiská, vestan-undir Þríhyrn-
ingi, og eins og komist er að orði jafnan þegar rætt er um ferð af
þeim slóðum til Fljótshliðar. Hér er enn sagt austur, fram og inn í
Hlíð, en hvorki upp né suður til Fljótshlíðar. Er það ein bending til þess„
að Holtsvaðs sé ekki hér að leita á Fiská eða Rangá1).
Þorgeirsvað og fleiri vöð á Eystri-Rangá.
Þótt ritað sé þegar um flest þessara vaða í Árb. Fornl.fél., leyfi
ég mér að víkja hér að þeim nokkrum orðum, af því að þar er ekki
fyllilega rétt skýrt frá.
Rangá eystri fellur fram til útsuðurs fyrir austan og sunnan Keldur.
Hún liggur þar í olnboga suðurávið og er næst bænum til land-
suðurs (tæpl. IV2 km.), en fjarlægist úr því. Frá Fossdölum að Hald-
fossum hafa verið 6 vöð2). Efst er Reynifellsvað, undir fossinum. (Árb.
Fornl.fél. 1902, 47), þá Eyrarvað, nú akvegur; mun vera seinni tíma
vað (Árb. 1902, 4), þá Hlíðar- eða Skógarmanna-vað, eldra nafn (Árb.
1888—92, 49), þá Þorgeirsvað, þá vaðið «ofan við Þorgeirsstein«
(Safn til sögu ísl., II., 535) og syðst vaðið, »fyrir ofan HaIdfossa«„
sem er um 2 km. frá bænum á Keldum, en lítinn spöl fyrir austan
mynnið á Keldnalæk, þar sem hann fellur í Rangá. Þessi 4 síðasttöldu
vöð eru öll vestanmegin af grasvelli þeim, sem nefndur er Austurhald.
a. Þorgeirsuað hefir í fyrndinni verið farið oft; það sýna margar
1) Höf. hafði ritað þessar athugasemdir sínar áður en grein Vigfúsar Quð-
mundssonar birtist i Árb. Fornl.fél. 1927, bls. 10—14. Eftir að sú grein kom út
hefir Skúli ritað um Holtsvað í Lesbók Morgunblaðsins, III. árg. 30. tbl. Vegna
þess að hann ræðir þar nokkuð gjör um þetta mál er nú sleppt úr þessari grein,
sem hér birtist, ýmsu, sem hann tekur þar fram. Geta má þess, að Vigfús svar-
aði aftur Skúla í Morgunblaðinu, 15. árg., 191. tbl. M. Þ.
2) Fossdalir eru hjá Reynifells- eða Keldna-fossi, en Haldfossar þar sem
Keldnaiækur og Teitsvötn renna i Rangá. Þessi kafli á ánni er um 2 km. M. Þ.