Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Síða 14

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Síða 14
14 enn ósennilegra, að þeir Flosi, eða nokkur hluti liðsins, skyldi ekki ríða yfir ána niðri á eyrunum og koma svo í fasið á Ingjaldi, þar sem hann »reið ofan öðru megin árinnar«. Auk alls þessa liggur Vígi svo lágt, að þaðan hefði aldrei orðið kastað spjóti upp á hábrún hinumegin. Þar eru og hávaðar svo miklir, að ekkert mannamál heyrist. — Ég hygg sönnu nær, að Flosi hafi fyrir löngu verið bú- inn að gjöra sitt ráð og hafi ætlað sér hina vestari leið, hvernig sem á stæði, en engum manni gjört það kunnugt fyr en eftir þennan atburð. All-líklegt er, að Ingjaldur hafi snemmendis verið búinn í ferð þennan morgun og hafi ætlað njósnarferð suður í Hvolhrepp, t. d. að Þórunúpi, eða á vettvang að Bergþórshvoli, en eftir fundinn hleypt í skóginn1), vestur til Hofs, að frétta af Kára(?), og riðið svo þaðan eftir honum allt upp til Þjórsár. Það er skaði, að ekki er getið um heimili þeirra Bárðar og Geir- mundar. Geirmundur kvaðst vera frændi Sigfússona. Honum var ekki ókunnugt um Ingjald, er hann heyrði, »at hann myndi heima vera«. — Það liggur ekki fjarri tilgátum, að Ingjaldur hafi sent þá í dular- gervi til að fá sannar fréttir. Af svörum Ingjalds til Flosa má ráða, að Ingjaldi hafi verið kunnugt um undankomu Kára, þótt sagan ekki geti þess, með hverjum hætti fréttin hafði komið honum, — með þeim Bárði, eða frá Hofi, eða með þeim Flosa; verður því allt óljósara. — Þessu að eins slegið fram. — Vera má að Bárður hafi búið í námunda við Bergþórshvol, og Kári sótt Bárð heim, þótt Geirmundur komist svo að orði, að Bárður hafi fengið Kára hest sinn. Ekki get ég heldur fallizt á, að Flosi hafi farið inn með Vatns- dalsfjalli, um garð a Velli og Árgilsstöðum2), og yfir Fiská á Skútu- vaði (Árb. Fornl.fél 1902, 7.—8.); enda er vegurinn þar um að Keld- um hvorki betri né beinni en hinn, upp Krappann og yfir ána fyrir ofan Haldfossa t. d. » Að líkindum hefir Sigurður Vigfússon ekki komið að Rangá í Tunguheiðinni eða skoðað árfarveginn þar og borið saman við Vígi 1) Þá hefir eflaust verið skógi vaxið beggja-megin árinnar. Enn má sjá merki þess í Krappanum, í hinum miklu hömrum sunnan-í-móti, sem grasbítur nær ekki til og er mönnum ílt til aðsóknar. Þar er svartaviður enn. 1. d. var þar tekið á tvo hesta frá Reynifelli i nýtt húsþak eftir aldamótin (um 1905). En norðan-megin Rangár eru hamrar minni og lægri, enda eru þar nú ekki nema gráviði-hríslur á hér um bil 24 stöðum, og svo víriviður sunnar, vestast á Fjósa- flöt og um allt Tungunes. Einnig smáhólmi í Vesturhaldi. 2) Árgilsstaðir munu vera einn af þeim bæjum, sem breytt hafa nafni. Árið 1687 eru þeir nefndir Arngeirsstaðir (Sýslumannaæfir IV., 272, 602); söraul. í Jb. Á. M. (1711), I., 228. Sjá Árb. Fornl.fél. 1923, 18-19.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.