Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 27

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 27
27 alþaktir gráviðarlaufi. Var þá örskammt austar Tröllaskógur, hvar Önundur bjó; það er framan-í stórri malaröldu og er engin slík þar nærlendis; þar hafði kirkja verið og mátti sjá nokkur mannabein til merkis um það. Allt þetta heiðarland hefir gjörblásið í mold og hraun síðan 1881, svo að hvergi sá gras eftir, ég held ekki fingurgóms díll. Frá Knafa- hólum framundir Keldur, háhraunið fram á brún, út að Hraunlæk, var gróðurlaus apall, en hefir fyllst af sandi við blásturinn ofan frá. Yfir það var ruddur vegur frá Knafahólum að Keldum. Þetta kann nú að virðast all-langir útúrkrókar, en þó vil ég bæta við. Ég var að reiða hey af engjum heim að Keldum, að 46 ár- um síðan. Norðanveður var stíft daginn áður og hélzt enn. Mér varð litið til hliðar undan veðrinu, og sá skýrar götur í mósvartri mold- inni jafnar og beinar. Ég fór af baki og taldi göturnar, 21 á fjögra faðma svæði, en yfir þeim var þá fyrir tveim árum algróinn vallendis- flötur, meira en meter hátt yfir gatnamótin. Vindstaðan var alveg eftir götunum og skóf úr þeim niður á troðningana. Þær höfðu geymst þarna í leirþéttri moldinni, neðar en í miðju jarðlaginu á fastan aur. Strax rann á göturnar þegar dró úr veðrinu og hefi ég hvergi séð svona, nema í þetta sinn; en Kári sneri sér betur að þeim í annað skifti og tók þær allar til grunna, að hvergi sæji. Þetta var vestan- fram af Nónholti, vestan glærunnar áður-sögðu, hvar nú er hrúaldur af sandi og margir melkollar, sömu göturnar og liggja á Spámanns- staðaholti. Til allra þessara gatna má sjá á Hofsvelli. Gegnum mel- kollana á sama stað og göturnar voru, er nú kirkjuvegurinn, sem ég gat um hér að framan, og beygir hann þaðan austur Öldur og mætir hinum hjá Kirkjuhól. Svo ég hverfi aftur ofan í nesið og litist þar betur um. Þaðan gerist margt til frásagnar. Landi hallar að á alla vegu og myndast þarna stór dalur, lengst frá bæjum, á landamærum mikilla jarða, og sjónhvarfi öllum megin að; samt rúmt og frjálslegt og á miðpunkti héraðsins, þarna var tilvalinn samkomustaður, og eins hentugt til án- ingar. Fiská kemur austan-að, úr löngu gljúfri, sem nær inn að Skútu- fossi; upptök hennar eru norðvestan í Rauðnefsstaðafjalli; í Njáls-tíð myndi það geta kallazt, að hún kæmi ið nyrðra úr Þríhyrningsháls- um; og rennur hún fast með öllum hálsinum suður undir Þríhyrning, þá losnar um hana með öllu fjallinu og að Vatnsfelli, síðan er hún í einni skorðu fast undir því, að áður sögðum Skútufossi. Milli hennar og Rangár var kallað Hólmslönd einu nafni og er nokkur partur þeirra kallað Hólmur, í Hólminum, Reynifellshólmur. Þar eru kvistrunnar og

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.