Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Síða 36

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Síða 36
36 Móeiðarhvoli og norður af Bergvaði, bær síðar byggður, nú í eyði, og yrkt frá honum, bæði til slægju og beitar. Má sjá þar móta fyrir árfarveg fram með hábrúninni, og hólmurinn þá með nesinu umgirtur Eystri-Rangá; og gömul sögn er, að Lambhagi ^), norðanmegin, vildi eiga hlutdeild í hólminum eftir að áin féll öll þarmegin. Þarna gátu verið ágætis-engjar, mýri og vallendi utan með, og hvergi stað- ur samkvæmari sögunni. Annað er heimaland suðvestur af bænum, við mynni Rangár, kallað Móeiðarhvols-tangi. Það er líkast sem móti þar fyrir farvegi eftir Rangá austur-á-við, en tanginn verið sem ey í ármynninu, og tók eystri állinn Þverá hjá ósavaðinu, til viðbótar sunnanmegin hennar. Þarna var eins líklegt til slægna. Þessir gamalþornuðu farvegir verða svo grónir og grunnir þar sem vötnin hverfa frá, og grafa sig niður, að margir hinir kunnugustu veita þeim enga eftirtekt. Nú er löngum ferjað yfir Þverá frá Fróð- holtshjáleigu á þessum stað, bæði í þennan tanga Hvolhrepps-megin, og í Oddhólstanga Rangárvalla-megin. Þennan veg, hálsana, hafa þeir riðið, Skarphéðinn og Högni, þeg- ar þeir guldu það snarræði, að fara fyrst að Odda, svo undir Þrí- hyrning sömu nóttina, síðast að Hofi, kap. 79, bls. 179—80. Þessi krókaleið þykir mörgum ótrúleg, en eins og það er víst, að enginn er öðrum sjálfur, er það einnig víst, að þeir einir hafa gjörst vitað, hvernig veiðin bærist bezt í hendur þeim. Má-ske talið sér áhættu- minna og fljótunnara í Odda, þar sem voru minni ribbaldar, en lítt á þá fundið, þó Mörður biði dagsbirtunnar; talið sér alls kostar við hann að eiga, óviðbúinn. Þetta gátu þeir riðið frá Hlíðarenda að Odda á hálfum þriðja klukkutíma, og þaðan undir Þríhyrning á hálfum öðrum klukkutíma; seinast að Hofi, bakleiðis, á einum klukkutíma, og mátti þeim vel endast nóttin til þessara verka. Ég gjöri ráð fyrir, að þeir ríði sem næst 8 kílómetra á hálftíma, og má það heita vel riðið, en engin gapareið1 2). 1) Undan rofbakka, örskammt fyrir austan túnið (ekki vestan) í Lambhaga, blés frá dysi að nokkrum árum síðan, sem í var mannsbein, hests- og hunds-bein, og óljósar leifar af sverði. Hestsbeinin höfðu verið standandi. Þetta var sagt Brynj- úlfi Jónssyni fornfræðingi. Síðar fann ég þarna einn mannsjaxl og færði hann á Þjóðminjasafníð. 2) Ég hefi tvisvar léð hest, sem var riðið 8 kilómetra á 20 mínútum, á ólögðum vegi. Þorgils frá Rauðnefsstöðum reið heim frá Reykjavik einhesta á hálfum sólarhring, og báðir jafnhraustir á eftir. Þetta er nærri 6 kílómetrar á hálftíma; þar í tvær ferjur, og hvíldir. Þá lagði honum einhver í munn (jafnvel Grímur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.