Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 38

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 38
38 megin, sem eru milli vaðanna og ná upp fyrir GunnarsvaðJ). Ingjaldur hvarf þeim í skóginn; sá skógur hefir verið fyrir norðan veginn milli ár og Keldnalækjar, og hefir Rangá átt upptök að blástri á þeim stað. Ég vil meina að slíkir skógar á breiðu láglendi hafi verið grann- vaxnir á þeim tíma. Hin miklu skóglönd, sem tíðrætt er um, voru eydd löngu, löngu fyrir landnám. Það eru stóru lurkarnir í árbökk- um og mógröfum, sem villa mörgum sýn, langt neðar en yfirborð jarðlagsins var á landnámsárum; en smákjarr og fjalldrapi var sem allt landið logaði í, á meðan það var óbælt og óbitið. Að Flosi hafi farið lengra upp-með ánni, til að finna Ingjald, tel ég alveg ómögulegt. Allt frá Sellæknum og upp-með svo-kölluðum Teits- vötnum er afar-ógreitt reiðfæri; því fremur sem skógurinn var, og áin síðan í djúpum þrengslum allt upp-undir Gunnarsstein, hvergi fær. Einvígi, sem kallað er á þessari leið, er auðsjáanlega ekki í nokkru sambandi við vopnaskifti þeirra Ingjaldar. Þetta er slípaður hraunás; bendir í strauminn á fossiðu niður í árbotni; þur þegar áin er lítil, og er fátt til ólíkara. Þaðan skammt innar eru Orustuhólar, tveir keilimyndaðir, grónir í topp fram á 19. öld, og er stutt frá þeim að Gunnarssteini, hvar dysin eru Sandgils-feðga og annara, er þar voru vegnir; þau voru tvö, bæði samfeld, með töluverðum beina- leifum er ég fyrst man, og ýkja háir rofbakkar allt um kring, sem var samfellt graslendi alla leið milli Keldna og Árbæjar í tíð föður míns, og gatan á milli dysanna, sem þá voru öllum hulin. í þessu sambandi get ég varla leitt hjá mér, að geta um ferð Höskuldar Njálssonar, þegar hann vitjaði bús síns að Holti, og reið um garð á Sámstöðum, kap. 98, bls. 230. Sennilega hefir hann farið beinustu leið frá Bergþórshvoli. Þaðan gaf varla vel greiðan veg. Affallsbakkar þarmegin ekki góðir, í krókum og úrleiðis; það austasta, sem hann gat farið, var frá Affallinu um Berjanes, — þar sem Tyrfingur bjó; eyddist af sandfoki; var skammt austar en nú er bærinn, — og gat hann þá hafa riðið um hjá nafna sínum við goðorðsstefnu i Hvítanesi; en hvar sem hann hefir um Landeyjar farið, læt ég hann ríða yfir þjóðveginn, þar síðar var Hemlusandur, sunnan við Lambey, og beint upp að Sámstöðum; hlíðin var þar lang styzt og allgreitt þegar upp var komið. Lýtingur sat fyrir Höskuldi norður frá garði, í gröf nokkurri, líklega í dæld, þar allskammt inni á heiðunum, og vil ég meðkenna, að Sigurður Vigfússon fer þar rétt með, eins og hans var vandi, þegar aðrir ekki villtu hann, og að Holt og Vatnsdalur hafi þá verið 2) Ég man gríðarstóran karl, Þorstein frá Árgilsstöðum, er heyrði talað um Þorsteins-bakka á eyri við ána, en týndur var bakkinn, og ber eyrin, þegar hann kom i nágrennið.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.