Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 49
49
nú er eftir af Reyðarvatnslandi — en að líkindum hefir áður fylgt
Kirkjubæ, — því það er fyrir neðan Reyðarvatn og Hróarslæk.
Eilifur í Litla Odda (e.), hafði oddann allan milli Hróarslækjar
og ytri Rangár, upp að Reyðarvatni og Víkingslæk. Auk Litla Odda,
— sem staðið hefir norðan við Hróarslæk (Selalæk), milli bæjanna
Varmadals og Selalækjar — hafa þar verið upp með læknum: Gröf,
Grafarbakki, Ketilhúshagi, Gunnarsholt, Kornbrekkur og Brekkur (allar
í eyði), en upp með ánni: Gauksstaðir (nú Gaddstaðir), byggðir úr
Litla-Odda, Helluvað, Grákollustaðir (e.), Geldingalækir báðir, Heiði og
býli tvö frá síðustu öldum: Þingskálar og Kaldbak.
Þar fyrir ofan tók við land Björns i Svínhaga og deildi Víkings-
lækur löndum þeirra bræðranna. Þar bættust síðar við þessi býli:
Bolholt, Víkingslækur, Steinkross, Dagverðarnes, Ketilsstaðir (4 í eyði)
og Ketilsstaðakot. Takmörk þessa lands eru að vísu ekki svo glögg eða
viss að sunnanverðu, sem á öðrum stöðum. Og líklega ótakmarkað
upp til fjallanna, þar til Þórunn kom og Þórsteinn tjaldstœðingur í
Skarð ið eystra1). Land þeirra virðist hafa tekið yfir Næfurholt, Hauka-
dal, Selsund, Skarð og Tjaldastaði.
Miðsvæðis, upp frá Reyðarvatni og Stokkalæk, að eystri Rangá
allt til fjalla, var bújörð Kols í Sandgili (e.). Tók hún yfir Keldnaland
með hjálendum, Árbæ (e.), Foss, Tröllaskóg, Litlaskóg og Melakot (3
síðustu gjöreyddar). Loks hafði Hrólfur rauðskeggr »Hólmslönd öll«,
milli eystri Rangár og Fiskár, þ. e. Rauðnefsstaði — sem þá hét Fors,
Þorleifsstaði, Hrappsstaði (e.) og Reynifell2).
Er nú svo upp talið, að enginn »bjór« liggur ónuminn í sveit þess-
ari. Og höfundar Landnámabókar (sem hér um slóðir verða að vera
Ari fróði, Sæmundur fróði, Skálhyltingar og Haukdælir í sameiningu)
voru vissulega kunnugri, skarpskygnari og vandvirkari en svo, að
þeir fleygðu Flosa ofan á landnám annara. Og þar sem handrit höf-
undanna eru fyrir langa-löngu glötuð, má öllum ljóst vera, að hér er
komin meinleg villa í Landnámu — þennan fágæta dýrgrip í bók-
1) Það hefir staðið sunnan-undir Selsundsfjalli, og eyðilagzt að fullu fyrir miðja
15. öld. Hraun runnið frá Heklu yfir bæjarstæðið 1436 (eða 1483?) og mestan hluta
túns og haga. Líkast að Ketilsstaðir og Tjaldastaðir hafi sætt sömu örlögum.
2) Verið getur að Reynifell, sem nú er norðan-undir fellsendanum (Reynifells-
öldu) hafi, áður blés, staðið undir suðurendanum, þar sem Brynjúlfur Jónsson
gat til að Holt hefði verið, og nokkur merki sjást til byggðaleifa (Árb. Fornl.fél.
1896, 32 og 1892, 47). Annaðhvort þarna eða á Hrappsstöðum, hlýtur að hafa
verið bær Starkaðar »undir Þríhyrningi*. — Varla báðir byggðir á Njáls dögum.
Þá hefðu brennumenn hvorki komist að norðan né sunnan austur fyrir Þríhyrning,
nálægt fjallinu, til þess að komast upp, án þess að sjást frá öðrum hvorum bæn-
um. Sama gildir um Þorleifsstaði að norðanverðu og Vatnsdal að sunnan.
4