Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 51

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 51
51 hefir verið sagt, þá sýnist mér það nægja til þess, að hér þurfi að leiðrétta Landnámu1). En nú vill lika svo vel til, að eitt handrit a. m. k. af Landnámu gefur um þetta ekki aðeins góðar bendingar, heldur sannar það sæmilega. Þar er skýrt frá kvonfangi goðans i Rangárþingi, sonar Hrafns heimska: »Jörundur fekk Þuríðar, dóttur Þorbjarnar ens gaulverska« (systur Flosa) »ok var brúðkaup þeirra í Skarfanesi at Flosa, er öll lönd átti milli Þjórsár ok Engár« (Ln. 1925, bls. 12). Hér er Flosi auðsjáanlega kominn á sinn rétta landnámsstað. En þó hafa í þess- um fáu orðum mislesist fyrstu stafirnir í árnafninu: »Engár« fyrir Rangár (»r-gar« ?) — óbreytt r og e eru oft lík í gömlum handritum). Ekki þekki ég nokkur líkindi til þess, að Skarðslækur væri þá kalÞ aður Engá. En hefði svo verið, gat alls ekki verið rétt, að tala um »öll lönd«, er Flosi átti »millum Þjórsár og Engár«, því að þar á milli — fyrir ofan Skarðsfjall, og samkvæmt áðursögðu — verður lítið annað talið en lönd tveggja minni háttar eyðibýla: Eskiholts og Yrja. Þvi síður getur þetta átt við um Skarfaneslæk. Og er þá hvorki annar lækur né á nær Þjórsá en Rangá ytri. Liklegt er, að Flosi hafi komið út síðla, þó ekki síðast á land- námsárunum, og numið öll lönd milli Þjórsár og Rangár, um þvert Land fyrir austan Skarðsfjall og upp móts við Búrfell, inn undir Rang- árbotna. Getur þá vel staðist, að Þorsteinn tjaldstæðingr »nam land at ráði Flosa . . . út til móts við Svínhaga-Björn«. Þeir hafa orðið nágrannar, þó að langt væri milli bæjanna, þar sem Ytri-Rangá hefir skift löndum þeirra að ofanverðu. Þórunnarhálsar munu þó vera nær ánni. En landnám þeirra Þorsteins og Þórunnar sýnist vera eitt og sama í byrjun. Er það líka eðlilegast, þar sem þau voru náskyld og komu út saman. V. G. 1) Áríðandi er að i hinni nýju vönduðu útgáfu Landnámu »verði allir slíkir vafastaðir teknir til athugunar*, og leiðréttir eftir þvi sem rök liggja til. 4*

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.